Vilja afnema guðlast úr hegningarlögum Þorgils Jónsson skrifar 13. janúar 2014 10:18 Háværar raddir voru uppi um meint guðlast þegar Jótlandspósturinn birti skopmyndir af Múhameð spámanni. Nú er kominn pólitískur meirihluti í Danmörku fyrir að afnema ákvæði um slíkt úr hegningarlögum. NORDICPHOTOS/AFP
Meirihluti danskra þingmanna er tilbúinn til þess að slá út úr lögum bann gegn guðlasti. Þetta kemur fram í frétt Politiken, en þar segir jafnframt að ekki hafi verið dæmt eftir lögunum frá árinu 1946. Þá fékk kærustupar eitt sekt fyrir að hafa mætt á grímuball í prestsklæðum og „skírt" leikfangabrúðu, en refsiramminn er allt að fjögurra mánaða fangelsi. Árið 2012 mælti Mannréttindastofnun Danmerkur með því að ákvæðið um guðlast yrði fellt úr gildi en nú er þess beðið að sérfræðinefnd um hegningalög gefi frá sér álit um málið. Það mun vart gerast fyrr en að ári, sökum anna hjá nefndinni. Hins vegar hafa flestir flokkanna á þingi lýst því yfir að þeir séu fylgjandi slíku. Auk fyrrnefnds dæmis var DR, danska ríkisútvarpið, árið 1971 ákært á grundvelli guðlastslaganna eftir að söngkonan Trille hafði sungið lag þar sem textinn fjallaði meðal annars um óhefta kynhvöt Guðs. DR var sýknað, og síðan hefur enginn verið ákærður í slíkum málum, en nokkrir hafa þó verið kærðir til lögreglu, þar á meðal kjörbúð sem auglýsti sandala með myndum af Maríu mey og Júdasi og auk þess var birting Jótlandspóstsins á skopmyndum af Múhameð spámanni einnig kærð án þess að málin kæmu til kasta dómstóla.Manu Sareen, kirkjumálaráðherra Dana, léði nýlega máls á því í fella ákvæðið um guðlast úr lögum og Marianne Jelved menningarráðherra segir í pistli sem hún skrifar ásamt þingflokksformanni Róttækra í Politiken í dag að tillitsemi við trúarskoðanir ætti ekki að vera tjáningarfrelsinu yfirsterkari. Greinarhöfundar segja meðal annars að rétt sé „að gagnrýna trú þegar trúin til dæmis leyfir kúgun - þegar imam predikerar að staður konunnar sé inni á heimilum, eða þegar Vatíkanið predikerar andstöðu við noptkun smokka til að berjast gegn útbreiðslu alnæmis."
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira