Moska, sýnagóga og kirkja undir sama þaki Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. júní 2014 00:01 Haldin var hönnunarkeppni og bar þessi hönnun sigur úr býtum. Mynd/BBC
Yfirvöld í borginni Berlín telja sig vera að skrá sig á spjöld trúarsögu heimsins þar sem að til stendur að byggja bænahús sem sameinar trú múslima, gyðinga og kristinna manna. Húsið sem er kallað The House of One upp á ensku eða Hús þess eina verður sýnagóga, kirkja og moska undir einu þaki. Keppni um að teikna húsið hefur verið haldin og valinn hefur verið sigurvegari. Húsið verður múrsteinshús með háum, kassalaga turni í miðjunni. Verða þrjár einingar sem hver mun hýsa eina trú. Til stendur að byggja þetta hús sem sameinar hinar ólíku trúarstefnur í hjarta Berlínar á stað sem kallast Petriplatz. Staðsetningin er táknræn segir rabbíninn Tovia Ben Chorin. „Frá mínum sjónarhóli, sjónarhóli gyðings, er borgin sem áður var vettvangur þjáningar gyðinga nú borg þar sem byggð verður miðstöð af þremur eingyðistrúm sem hafa mótað menningu Evrópu,“ sagði hann í samtali við BBC. Hann segir hópinn vinna vel saman. Kadir Sanci, íslamskur bænaprestur, sem tekur þátt í verkefninu segir húsið vera merki til heimsins um að flestir múslimar séu friðsamir og ekki ofbeldisfullir. Einnig segir hann staðinn verða vettvangur þar sem ólíkir menningarheimar geti lært af hver öðrum. Sérhvert af rýmunum þremur í húsinu verður af sömu stærð en af mismunandi lögun. Nánar má lesa um húsið á vef BBC. Sameining þriggja ólíkra menningarheima.Mynd/BBC.
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira