Erlent

Frans páfi heimsækir Suður-Kóreu

Mynd/AP
Frans páfi er nú staddur í Suður Kóreu þar sem hann heimsækir kaþólikka þar í landi en kaþólskan á upp á pallborðið þar í landi og hvergi í heiminum fjölgar þeim sem halda þann sið örar.

Kaþólikkar eru nú um fimm og hálf milljón í Suður Kóreu eða rúm tíu prósent landsmanna. Þetta er fyrsta heimsókn páfans til Asíu frá því hann tók við embættinu í mars á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×