Margot Wallström aftur á fullt í sænsk stjórnmál Atli Ísleifsson skrifar 14. ágúst 2014 13:50 Margot Wallström hefur víðtæka reynslu eftir að hafa lengi starfað í Brussel. Síðustu árin hefur hún gegnt stöðu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna á sviði kynferðislegs ofbeldis í hernaði. Vísir/AFP
Margot Wallström hefur tilkynnt að hún hyggst taka fullan þátt í kosningabaráttunni fyrir sænska Jafnaðarmannaflokkinn. Wallström tilkynnti þetta á fréttamannafundi með Stefan Löfven, formanni Jafnaðarmanna, nú fyrir stundu. Kom þar fram að Wallström myndi gegna mikilvægu hlutverki í kosningabaráttunni og að kosningum loknum. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð þann 14. september næstkomandi og benda skoðanakannanir til að borgaralegu flokkarnir sem nú stjórna landinu munu lúta í lægra haldi gegn vinstriflokkunum. Lengi hefur verið spáð því að Wallström myndi snúa aftur í innanríkispólitíkina og hefur nafn hennar jafnan komið upp þegar Jafnaðarmenn hafa skipt um formann síðustu árin. Wallström sagðist ætla leggja mikla áherslu á umhverfismál í kosningabaráttunni enda munu mikilvægi þeirra einungis aukast á komandi árum. Hin 59 ára Wallström gegndi embætti menningarmálaráðherra frá 1994 til 1996 og félagsmálaráðherra 1996 til 1998. Sagði hún af sér árið 1998 eftir ósætti við Göran Persson, þáverandi forsætisráðherra. Ári síðar tók hún við embætti framkvæmdastjóra umhverfismála ESB og gegndi stöðunni til 2004. Frá 2004 til 2010 gegndi hún embætti varaforseta framkvæmdastjórnar ESB í framkvæmdastjórn José Manuel Barroso. Að undanförnu hefur hún svo gegnt embætti stjórnarformanns Háskólans í Lundi og verið sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna á sviði kynferðislegs ofbeldis í hernaði.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira