Maríjúanasígarettur frá Marlboro reyndust uppspuni 25. janúar 2014 22:25
Hundruð þúsunda manna hafa deilt frétt á netinu þess efnis að tóbaksframleiðandinn Philip Morris sé farinn að selja maríjúanablandaðar sígarettur og ætli að koma upp maríjúanaökrum í Mexíkó og Paragvæ til að anna eftirspurn. Samkvæmt fréttinni á tóbaksframleiðandinn að hafa ráðist í framleiðslu vindlinganna í kjölfar þess að maríjúana hefur verið leyft í ákveðnum fylkjum Bandaríkjanna. Það var fréttasíðan Abril Uno sem birti fyrst fréttir af Marlboro M, eins og sígaretturnar eru kallaðar, og einhverjir fréttamiðlar hafa endurbirt hana. Nú hefur hið sanna hins vegar komið í ljós. Fréttin er uppspuni frá rótum og Philips Morris er ekki farinn að framleiða maríjúnasígaretturnar. Sem fyrr segir bitu ansi margir á agnið hjá þessari grínfréttastofu og það hefur reynst heldur erfitt fyrir tóbaksframleiðandann að kveða þessa sögu í kútinn. Fyrir þá sem kunna smá spænsku gefur nafn grínsíðunnar ýmislegt til kynna en Abril Uno þýðir 1. apríl. Einhverjir svekktir netverjar hafa þó bent á að það sé kannski ekki alveg út úr myndinni að tóbaksframleiðandinn muni í raun hefja framleiðslu á Marlboro M. Í desember síðastliðnum var Bill Phelps, talsmaður Philip Morris í Bandaríkjunum, spurður hvort fyrirtækið myndi bregðast við breyttri vímuefnalöggjöf og jafnvel fikra sig inn á maríjúanamarkaðinn. "Við höfum þá stefnu að ræða ekki né ýta undir vangaveltur um framtíðarviðskipti okkar. Tóbaksframleiðendur framleiða og selja tóbaksvörur," var svar Phelps.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira