Sektaður fyrir stöðustuld á Facebook-síðu fyrrverandi Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2014 16:57 Visir/AFP
Stöðustuldur ungs Íra á Facebook-síðu fyrrverandi kærustu hans kostaði hann 300 þúsund krónur á dögunum eftir að dómstólar í Írlandi komust að þeirra niðurstöðu að stöðuuppfærsla sem hann skrifaði í hennar nafni hafi skaðað orðspor konunnar. Talið er að þetta sé fyrsti dómur sinnar tegundar í heiminum og leiddar eru líkur að því að hann geti orðið fordæmisgefandi fyrir önnur sambærileg dómsmál á heimsvísu á komandi árum. Málavextir voru þeir að hinn þrítugi Íri frá bænum Donegal fór til að ræða meint framhjáhald við fyrrverandi kærustu sína og á leið sinni út úr húsi hennar þreif hann síma konunnar með sér. Hann renndi yfir smáskilaboðin hennar sem staðfestu grun hans um að hún væri komin í samband með öðrum manni. Í reiði sinni brá hann á það ráð að skrá sig in á Facebook-reikning konunnar og skrifa stöðuuppfærslu í hennar nafni. Þar kallaði hann konuna „gleðikonu“ og sagði að hún tæki við „öllum tilboðum sem bærust.“ Konan gerði lögreglunni viðvart sem var skömmu síðar komin á vettvang og handtók manninn. Írinn játaði sekt í málinu og viðurkenndi að hann hafi verið búinn að fá sér í aðra tána áður en hann lét til skarar skríða. Írski lagabókstafurinn sem felldi manninn kveður á um sekt upp að allt að 20 milljónum króna og tíu ára fangelsisvist fyrir sambærilegar ærumeiðingar og getur Írinn því prísað sig sælan með að þurfa einungis að punga út fyrrgreindum 300 þúsund krónum.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira