Belgískur faðir reynir að endurheimta syni úr röðum IS Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2014 10:15 Bontinck segir að honum hafi stuttlega verið rænt þegar hann reyndi að endurheimta son sinn, en hafði að lokum uppi á Jejoen og sannfærði hann um að snúa aftur heim. Mynd/NBC
Dimitri Bontinck, belgískur faðir sem fór til Sýrlands og endurheimti son sinn sem gengið hafði til liðs við vígasveitir IS, aðstoðar nú foreldra annarra í sömu stöðu að fá syni sína aftur til Evrópu. Fréttamaður NBC hitti Bostinck á landamærum Tyrklands og Sýrlands þar sem hann undirbjó aðra för til Sýrlands til að hafa uppi á ungum Evrópumönnum í sveitum IS og ná þeim aftur heim. Bontinck segir að áætlað sé að milli fimm og sex þúsund liðsmenn IS séu með evrópskt ríkisfang og aðrir tíu til fimmtán þúsund frá Miðausturlöndum.Í frétt NBC segir að þrátt fyrir hrottafengnar aðferðir samtakanna þá eru flestir erlendir liðsmenn þeirra sannir trúmenn sem engan áhuga hafa á að yfirgefa málstaðinn og snúa aftur til Vesturlanda. „98 prósent verða eftir,“ segir Bontinck. „Einungis tvö prósent liðsmanna snýst hugur og snúa aftur heim.“ Bontinck yfirgaf heimili sitt í Antwerpen í Belgíu á síðasta ári og hélt til Sýrlands til að hafa uppi á Jejoen, átján ára syni sínum. Bontinck lýsir syni sínum sem hugsjónamanni sem gekk til liðs við fyrirrennara IS þar sem hann vildi aðstoða aðra múslíma í átökum sínum við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta og stuðningsmönnum hans. „Þetta var það eina í stöðinni. Aðgerðir. Ég gat ekki setið heima.“ Bontinck segir að honum hafi stuttlega verið rænt, en að lokum haft uppi á Jejoen og sannfært hann um að snúa aftur heim. „Við beitum aldrei valdi.“ Frá því að Bontinck náði að sannfæra Jejoen um að snúa aftur heim hefur hann farið fyrir sambærilegum leiðöngrum eftir að feður annarra hafa beðið hann um aðstoð. Segir að þrír leiðangranna hafi borið árangur.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira