Erlent

Leigubílstjórar stöðvuðu umferð í Lundúnum í gær

Bjarki Ármannsson skrifar
Hinir auðþekkjanlegu leigubílar Lundúnaborgar stöðva hér umferð til og frá Buckinghamhöll í gær.
Hinir auðþekkjanlegu leigubílar Lundúnaborgar stöðva hér umferð til og frá Buckinghamhöll í gær. Vísir/AP
Þúsundir leigubílstjóra stöðvuðu alla umferð víða í miðborg Lundúna í gær til að mótmæla nýja snjallsímaforritinu Uber. Svipuð mótmæli áttu sér stað víða um Evrópu, meðal annars í París og Berlín.

Forritinu er ætlað að reikna út kostnað bílferða líkt og gjaldmælir í leigubíl. Þetta segja leigubílstjórar að gangi í berhögg við lög og eru þeir æfir yfir skorti á reglum varðandi notkun á slíkum forritum.

Frá þessu greinir fréttastofa BBC. Mótmæli leigubílstjóra hófust á Trafalgartorgi klukkan tvö í gær og stóðu í klukkustund. Um tíu þúsund bílstjórar tóku þátt og í það minnsta tveir voru handteknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×