Óttast upplausn og spillingu ráðastétta Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. apríl 2014 07:00 Nigel Farage á Evrópuþinginu. Skoðanakannanir sýna að skoðanabræðrum hans muni fjölga á Evrópuþinginu eftir kosningarnar í næsta mánuði. Nordicphotos/AFP
Stjórnmálaflokkar hægri sinnaðra andstæðinga Evrópusambandsins draga til sín fylgi frá kjósendum, sem eiga meira sameiginlegt en andstöðuna eina við Evrópusambandið. Kjósendur þessara flokka hafa almennt harða andstöðu gegn innflytjendum, glæpum og spillingu meðal hálaunaðra valdamanna, en leggja mikla áherslu á að tryggja öryggi og reglu í samfélaginu ásamt því að meta mikils hefðbundin gildi. Þetta kemur fram í nýbirtri skoðanakönnun, sem gerð var í vetur í Bretlandi, Frakklandi, Belgíu, Hollandi og á Ítalíu. Úrtakið var meira en tíu þúsund manns, en það var hollenska skoðanakönnunarfyrirtækið Motivaction International sem gerði könnunina. Spurðir voru kjósendur Breska sjálfstæðisflokksins í Bretlandi, Flæmska hagsmunaflokksins í Belgíu, Frelsisflokksins í Hollandi, Þjóðarfylkingar Le Pens í Frakklandi og Norðurbandalagsins á Ítalíu, auk þess sem hinir frekar vinstri sinnuðu kjósendur Fimm stjörnu hreyfingar skemmtikraftsins Beppo Grille á Ítalíu voru spurðir. „Lykillinn að því að skilja sálarlíf þeirra kjósenda, sem eru tortryggnir gagnvart Evrópusambandinu, er sú tilfinning að standa uppi einn og yfirgefinn ásamt almennu vantrausti,“ segir í skýrslu um niðurstöður skoðanakönnunarinnar. „Þeim finnst oftar að samfélagið hafi brugðist þeim og þeir bera einnig minna traust til annarra.“ Kjósendur þessara flokka koma úr öllum stéttum, en eiga það sameiginlegt að eiga erfitt með að láta enda ná saman og hafa átt erfitt með að takast á við afleiðingar efnahagskreppunnar. Þeir láta sig almennt umhverfismál, mannréttindi og atvinnuleysi litlu varða, en þeir hafa almennt minni trú en kjósendur annarra flokka á stofnunum á borð við ríkisstjórn og þing, banka, trúarstofnanir, verkalýðsfélög og Sameinuðu þjóðirnar. Kjósendur Fimm stjörnu bandalagsins á Ítalíu, sem almennt eru lengra til vinstri, virðast heldur hófsamari og framfarasinnaðri en kjósendur hægri flokkanna, sem könnunin náði til, en eiga þó sameiginlega með þeim hina almennu vantrú á stofnunum samfélagsins. Kosningar til Evrópuþingsins verða haldnar seinni partinn í maí. Skoðanakannanir benda til þess að flokkum efasemdarmanna um Evrópusambandið muni vegna betur en nokkru sinni. Óljóst hefur hins vegar þótt hvort þeir muni eiga auðvelt með að starfa saman, en þessi könnun bendir til þess að kjósendur þeirra eigi meira sameiginlegt en leiðtogar flokkanna.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira