Fótbolti

Jimmy Jump er gjaldþrota en ekki hættur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Jimmy Jump á ekki pening til að borga skuldir sínar en hann er samt ekki tilbúinn að hætta þeirri iðju sinni að stelast inn í sviðsljósið á stórum viðburðum.

Jimmy Jump heitir í réttu nafni Jaume Marquet Cot og er frá Katalóníu á Spáni. Hann varð heimsfrægur fyrir að lauma sér inn á ýmsa íþróttaviðburði þar á meðal úrslitaleik EM árið 2004 þar sem Portúgal mættir Grikklandi.

Jimmy Jump hljóp þá inn á völlinn og hendi Barcelona-fána framan í Luis Figo sem hafði skipt frá Barcelona til Real Madrid nokkrum árum áður.

Margir miðlar á Spáni sögðu frá því í dag að Jaume Marquet Cot sé nú gjaldþrota.

„Ég á enga peninga og skulda meira en 350 þúsund dollara. Ég var dæmdur á Spáni til að gefa eftir 50 prósent af launum mínum í hverjum mánuði," sagði Jaume Marquet Cot í viðtali við grískt blað en þetta gera um 43,5 milljónir íslenskra króna.

Þrátt fyrir slæma fjárhagsstöðu þá getur Jaume Marquet Cot ekki lofað því að hætta að "koma fram" sem Jimmy Jump. Hann boðar þess í stað að hann sé á leiðinni til Lissabon til að þess að minnast úrslitaleiksins 2004.

„Allir Grikkir styðja mig. Þeir vilja sjá Jimmy aftur. Ég ætla að fara til Lissabon og gera eitthvað til heiðurs Grikklandi. Ég ætla að fagna liðnu sem vann Evrópumeistaratitilinn 2004," sagði Jaume Marquet Cot í fyrrnefndu viðtali í Grikklandi.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×