Keane og Agbonlahor lenti saman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2014 12:15 Keane var ekki vinsæll á æfingasvæðinu. vísir/getty
Samkvæmt frétt breska dagblaðsins Daily Mail rifust Roy Keane og Gabriel Agbonlahor heiftarlega áður en sá fyrrnefndi hætti sem aðstoðarþjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa í lok nóvember. Heimildir Daily Mail herma að samband Keane, sem var fyrirliði Manchester United og írska landsliðsins á sínum tíma, og lykilmanna Villa hafi verið slæmt. Skömmu eftir komu Keane lenti honum og Fabian Delph saman og þá á Írinn skapstóri að hafa hellt sér yfir leikmenn Villa eftir tapleiki. „Andrúmsloftið var hræðilegt, allt frá því Keane mætti á svæðið,“ hefur Daily Mail eftir heimildamanni sínum. „Andrúmsloftið varð niðurdrepandi í hvert sinn sem hann mætti á æfingasvæðið. Menn fögnuðu og var létt þegar hann hætti.“ Upp úr sauð þegar Keane truflaði samtal Pauls Lambert, þjálfara Villa, og fyrirliðans Agbonlahor á æfingasvæðinu. Leikmaðurinn sagði Keane að hætta að trufla þá og í kjölfarið rifust þeir svo heiftarlega að stía þurfti þeim í sundur. Sama dag ræddi Lambert við Keane þar sem ákveðið var að slíta samstarfinu. Aston Villa hefur þvertekið fyrir að deilur Keane og lykilmanna liðsins hafi verið orsakað brotthvarf hans. Opinberlega ástæðan sem félagið gaf út var að Keane ætti erfitt með að samhæfa starf sitt hjá Villa og starf sitt sem aðstoðarþjálfari írska landsliðsins. Fáir leggja hins vegar trúnað á þá ástæðu. Keane, sem er 43 ára, verður seint talinn átakafælinn maður, en frægt er þegar honum lenti saman við Mick McCarthy, þjálfara Írlands, fyrir HM 2002 sem varð til þess að Keane yfirgaf æfingabúðir landsliðsins og spilaði ekki á mótinu. Þá lenti honum einnig saman við Sir Alex Ferguson árið 2005, en illdeilur þeirra bundu enda á tólf ára dvöl Keane hjá Manchester United. Síðan hefur ekki gróið um heilt á milli þeirra, en báðir hafa þeir sagt frá sinni hlið á málinu í nýlegum ævisögum sínum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Roy Keane sendi einn í burtu af hótelinu í sjúkrabíl Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, missti stjórn á skapi sínu á hóteli írska landsliðsins aðeins 48 tímum fyrir leik liðsins í undankeppni EM. Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum í morgun 13. nóvember 2014 09:30 Slagsmálin hjá Keane hafa ekki truflað írska landsliðið Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, hefur stolið athyglinni í aðdraganda leiks Skota og Íra í kvöld. 14. nóvember 2014 10:30 Keane lætur stjóra Everton heyra það Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, er allt annað en sáttur við Roberto Martinez, stjóra Everton. 17. nóvember 2014 12:00 Roy Keane hættur hjá Aston Villa Írinn lætur af störfum sem aðstoðarknattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins. 28. nóvember 2014 09:42 Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira
Roy Keane sendi einn í burtu af hótelinu í sjúkrabíl Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, missti stjórn á skapi sínu á hóteli írska landsliðsins aðeins 48 tímum fyrir leik liðsins í undankeppni EM. Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum í morgun 13. nóvember 2014 09:30
Slagsmálin hjá Keane hafa ekki truflað írska landsliðið Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, hefur stolið athyglinni í aðdraganda leiks Skota og Íra í kvöld. 14. nóvember 2014 10:30
Keane lætur stjóra Everton heyra það Roy Keane, aðstoðarþjálfari írska landsliðsins, er allt annað en sáttur við Roberto Martinez, stjóra Everton. 17. nóvember 2014 12:00
Roy Keane hættur hjá Aston Villa Írinn lætur af störfum sem aðstoðarknattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins. 28. nóvember 2014 09:42