Kirkjuheimsóknir leyfilegar en trúarinnræting ekki Aðalsteinn Kjartansson skrifar 17. desember 2014 10:41 Kjartan og Sóley tókust á í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm
Rúmlega tveggja klukkustunda umræður voru í gær í borgarstjórn um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar við trúar- og lífsskoðunarfélög. Umræðan fór fram að beiðni Sjálfstæðismanna, en eins og Vísir sagði frá í vikunni telur oddviti flokksins að ekki eigi að takmarka frelsi foreldra til að senda börn sín í kirkju með skólum.Þjóðkirkja í stjórnarskrá Tilefni umræðunnar eru ummæli Lífar Magneudóttur, formanns mannréttindaráðs Reykjavíkur, um að fyrirhuguð heimsókn nemenda í Langholtsskóla í Langholtskirkju væri ekki í samræmi við samskiptareglur borgarinnar við trúfélög.Sveinbjörg vísaði í stjórnarskrá Íslands.Vísir/ArnþórFulltrúi Framsóknarflokksins benti á þjóðkirkjuákvæði væri „Okkur ber því að vernda íslensku þjóðkirkjuna, hvort sem einstaka borgarfulltrúum líkar það betur eða verr,“ sagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir og bætti við að íslenska þjóðkirkjan væri varin í stjórnarskránni. „Það samræmist því ekki þessu boði stjórnarskránna ef það á að útiloka opinberar stofnanir, þar með talið grunnskóla og leikskóla, frá því að eiga samskipti við þjóðkirkjuna,“ sagði Sveinbjörg.Jólasveinninn og sorpflokkun Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagðist telja skýrt að heimsóknir í kirkjur væru innan þess ramma sem settur er með reglunum. „Ég hef alls ekki skilið það þannig að það væri eitthvað trúboð og innræting sem ætti sér stað þar, heldur bara mjög hátíðleg stund,“ sagði hann. Kjartan sagði að í grunnskólum væru innprentaðar lífsskoðanir í börn sem ekki endilega allir væru sammála um. Tók hann dæmi um sorpflokkun, sem umdeilt væri hversu langt ætti að ganga, lýðræði, sem ekki endilega allir væru sammála um, jafnrétti, sem Kjartan taldi ekki alla vera sammála um þó að borgarstjórn væri það, auk jólasveina. Nemendur Langholtsskóla munu fara í kirkju en ekki fá hugvekju.Vísir/Anton„Er það ekki ákveðin innræting í sjálfum sér að halda því fram að jólasveinninn sé til eða sé ekki til?“ spurði hann. Reglurnar skýrarSóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, sagði að enginn borgarfulltrúar meirihlutans hefði haldið því fram að heimsóknir í kirkjur væru bannaðar. „Aftur á móti setti formaður mannréttindaráðs réttilega spurningamerki við það hvort hugvekja í kirkju samræmdist þessum reglum,“ sagði hún. Benti hún á að vegna þessa hefðu stjórnendur Langholtsskóla hætt við þann hluta heimsóknarinnar þar sem átti að vera með hugvekju. „Það stendur tiltölulega skýrt í reglunum að kirkjuheimsóknir séu leyfilegar en það má ekki fara fram trúarinnræting í þessum kirkjuferðum og um það erum við öll sammála, eftir því sem ég best veit,“ sagði hún.
Tengdar fréttir Ósátt við að nemendur fari í kirkjuheimsókn Líf Magneudóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gerir athugasemdir við að nemendur í Langholtsskóla fari í kirkjuheimsókn á aðventunni. 10. desember 2014 23:00 Kirkjuheimsókn brýtur í bága við samskiptareglur borgarinnar Kvartanir hafi borist frá foreldrum vegna kirkjuferða skóla í borginni. 13. desember 2014 12:42 Ósáttur við túlkun á samskiptareglum við trúfélög Halldór Halldórsson vill endurskoða samskiptareglur borgarinnar og trúfélaga ef túlkun þeirra er á reiki. 15. desember 2014 07:00 Sigmundur Davíð segir jólasveina hafa óttast mannréttindaráð Skýtur á ráðið fyrir samskiptareglur við trúfélög sem banna kirkjuheimsóknir grunnskólabarna á jólunum. 14. desember 2014 17:28 Fordæmir fúla fimmaurabrandara forsætisráðherra Líf Magneudóttir segir orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ramba á barmi þess að mega heita popúlísk. 15. desember 2014 12:37 Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Sjá meira
Ósátt við að nemendur fari í kirkjuheimsókn Líf Magneudóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gerir athugasemdir við að nemendur í Langholtsskóla fari í kirkjuheimsókn á aðventunni. 10. desember 2014 23:00
Kirkjuheimsókn brýtur í bága við samskiptareglur borgarinnar Kvartanir hafi borist frá foreldrum vegna kirkjuferða skóla í borginni. 13. desember 2014 12:42
Ósáttur við túlkun á samskiptareglum við trúfélög Halldór Halldórsson vill endurskoða samskiptareglur borgarinnar og trúfélaga ef túlkun þeirra er á reiki. 15. desember 2014 07:00
Sigmundur Davíð segir jólasveina hafa óttast mannréttindaráð Skýtur á ráðið fyrir samskiptareglur við trúfélög sem banna kirkjuheimsóknir grunnskólabarna á jólunum. 14. desember 2014 17:28
Fordæmir fúla fimmaurabrandara forsætisráðherra Líf Magneudóttir segir orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ramba á barmi þess að mega heita popúlísk. 15. desember 2014 12:37