Ræddu um kirkjuheimsóknir skólabarna: Segir skoðanir Ásmundar eiga heima á 15. öld Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. desember 2014 11:37
Hart var tekist á í Bítínu á Bylgjunni í morgun um heimsóknir skólabarna í kirkjur á aðventunni auk þess sem tengsl kristinnar trúar og skólakerfisins var rædd. Gestir þáttarins voru Líf Magneudóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, og Ásmundur Friðriksson, sem situr á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ásmundur er mjög óhress með umræðuna og hvernig Reykjavíkurborg hefur háttað sínum málum. Borgaryfirvöld heimila heimsóknir í kirkjur en prestum er ekki heimilt að flytja hugvekju í slíkum heimsóknum. Ásmundur vill ganga lengra í þessum málum og vill að börnum verði áfram gefið Nýja testamentið í skólaheimsóknum. Hann telur um vera að ræða réttindi meirihlutans og að skólastjórnendur þori ekki að ganga gegn „þessum háværa, algjöra minnihluta.“ Ásmundur sagði ennfremur að þeir sem væru á móti kirkjuheimsóknum væri fámennur hópur „sem er svo hávær og hefur góðan aðgang að fjölmiðlum og öðru, að koma sínu á framfæri í gegnum pólitíkina og slíkt." 21 prósent skólabarna ekki í þjóðkirkjunni Líf telur ekki hægt að leyfa meirihlutanum að ráða slíkum málum, því ekki eigi að kjósa um mannréttindi. Hún telur að skólayfirvöld eigi ekki að hampa einum söfnuði fram yfir annan og bendir á að 21% grunnskólabarna séu ekki skráð í þjóðkirkjuna. „Þetta er líka spurning um það að við viljum ekki setja börn í einhverjar aðstæður þar sem þau þurfa að gera grein fyrir lífsskoðunum sínum, eða lífsskoðunum og trú foreldra sinna." Hún bendir á að skólar séu opinberar stofnanir og eigi að gæta hlutleysis þegar það kemur að trúarbrögðum. Líf lýsti upplifun sinni af heimsókninni í þáttinn á Facebook-síðu sinni. Þar segir hún: „Mætti 15. öldinni á Bylgjunni í morgun. Stuð.“ Í þættinum sagði Líf að heimsóknir í kirkju gætu vel verið skipulagðar utan skólatíma. Hún sagði að einn skóli hefði farið þessa leið; að hætta að fara í skipulagðar heimsóknir í guðshús. Kirkjan bauð börnunum þá til sín eftir skóla. Fyrsta árið hefði það gengið vel, margir hefðu mætt, en á öðru ári hefði fjarað undan þessu og eingöngu fimm prósent mætt. Hún sagði að þetta væri góð aðferð, að kirkjan auglýsti starf sitt fyrir foreldrum og byði börnum til sín að skóla loknum.Sykursjúkt barn þýddi bann við sætindum„Ég náttúrulega bara skil ekki þessa minnimáttakennd í algjörum minnihluta þjóðarinnar," sagði Ásmundur í kjölfar þessarar frásagnar Lífar. Ásmundur segir að við Íslendingar eigum að kynna kirkjuna okkar með stolti og vill ekki að minnihluti geti stoppað það. Hann líkti þessu við að ef eitt barn væri með sykursýki í einhverjum skóla þyrfti að banna öll sætindi. „Þetta snýst ekkert um það," svaraði Líf. „Þið eruð á móti kristinni trú. Þið eruð fámennur hópur," fullyrti Ásmundur. „Við?" spurði Líf á móti. „Þið sem eruð að predika þetta að börnin megi ekki...að börnin hafi skaða af því að fara í kirkjurnar," sagði Ásmundur. „Það hefur enginn sagt það," svaraði Líf. „Ég segi nú bara að við sem menningarþjóð, sem byggjum okkar menningu á, ja til dæmis Íslandssögunni. Ætlum við að segja að Íslandssagan sé bara lygi og kjaftæði? Ætlum við að hætta að kenna hana líka?" spurði Ásmundur. „Þetta er nú langsótt allt hjá þér," svaraði Líf. Hér að ofan má hlusta á deilur Lífar og Ásmundar og hér að neðan má sjá umræður um þáttinn á Facebook-síðu Lífar. Post by Líf Magneudóttir.
Tengdar fréttir Ósátt við að nemendur fari í kirkjuheimsókn Líf Magneudóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gerir athugasemdir við að nemendur í Langholtsskóla fari í kirkjuheimsókn á aðventunni. 10. desember 2014 23:00 Kirkjuheimsókn brýtur í bága við samskiptareglur borgarinnar Kvartanir hafi borist frá foreldrum vegna kirkjuferða skóla í borginni. 13. desember 2014 12:42 Ósáttur við túlkun á samskiptareglum við trúfélög Halldór Halldórsson vill endurskoða samskiptareglur borgarinnar og trúfélaga ef túlkun þeirra er á reiki. 15. desember 2014 07:00 Kirkjuheimsóknir leyfilegar en trúarinnræting ekki Borgarfulltrúar tókust á um kirkjuheimsóknir leik- og grunnskólabarna. 17. desember 2014 10:41 Sigmundur Davíð segir jólasveina hafa óttast mannréttindaráð Skýtur á ráðið fyrir samskiptareglur við trúfélög sem banna kirkjuheimsóknir grunnskólabarna á jólunum. 14. desember 2014 17:28 Fordæmir fúla fimmaurabrandara forsætisráðherra Líf Magneudóttir segir orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ramba á barmi þess að mega heita popúlísk. 15. desember 2014 12:37 Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Sjá meira
Ósátt við að nemendur fari í kirkjuheimsókn Líf Magneudóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gerir athugasemdir við að nemendur í Langholtsskóla fari í kirkjuheimsókn á aðventunni. 10. desember 2014 23:00
Kirkjuheimsókn brýtur í bága við samskiptareglur borgarinnar Kvartanir hafi borist frá foreldrum vegna kirkjuferða skóla í borginni. 13. desember 2014 12:42
Ósáttur við túlkun á samskiptareglum við trúfélög Halldór Halldórsson vill endurskoða samskiptareglur borgarinnar og trúfélaga ef túlkun þeirra er á reiki. 15. desember 2014 07:00
Kirkjuheimsóknir leyfilegar en trúarinnræting ekki Borgarfulltrúar tókust á um kirkjuheimsóknir leik- og grunnskólabarna. 17. desember 2014 10:41
Sigmundur Davíð segir jólasveina hafa óttast mannréttindaráð Skýtur á ráðið fyrir samskiptareglur við trúfélög sem banna kirkjuheimsóknir grunnskólabarna á jólunum. 14. desember 2014 17:28
Fordæmir fúla fimmaurabrandara forsætisráðherra Líf Magneudóttir segir orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ramba á barmi þess að mega heita popúlísk. 15. desember 2014 12:37