Ferguson skoðar skammarkrókinn fyrir UEFA Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. nóvember 2014 10:15 Sir Alex Ferguson er ekki alveg hættur í boltanum. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, fer fyrir nefnd innan evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, sem skoðar möguleikann á að taka upp „skammarkrókinn“ (e. Sin bin) í fótboltanum. Skammarkrókurinn er notaður í ruðningi og virkar þannig að mönnum er vísað af velli í tíu mínútur brjóti þeir af sér, en það er bara ein þeirra hugmynda sem Ferguson og fleiri þjálfarar eru með á teikniborðinu. „Ég fer fyrir nefnd nokkurra frábærra þjálfara sem hittast á hverju ári og svo er ég meðlimur í tæknihópi Meistaradeildarinnar og Evrópumótsins þannig ég er enn viðloðinn fótboltann á hæsta stigi,“ segir Ferguson. „Þessa stundina erum við að skoða að innleiða skammarkrókinn eins og í ruðningi - tíu mínútna brottvísun á meðan leik stendur. Við viljum samt ekki að hægt sé að misnota þetta á einhvern hátt ef þetta verður innleitt. Ferguson var ánægður með ákvörðun UEFA að fella niður gul spjöld í Meistaradeildinni þegar komið er í undanúrslitin þannig ekki er möguleiki á að neinn leikmaður missi af úrslitaleiknum vegna tveggja gulra spjalda. „Við vorum án Darren Fletcher 2009 gegn Barcelona og hvorki Keane né Scholes voru með 1999 gegn Bayern München. Eins og þetta er í dag þá hefðu þeir allir spilað þannig það er ekki sanngjarnt að þeir misstu af þessum leikjum,“ segir Ferguson, en nefndin sem hann er í er að skoða fleiri breytingar í boltanum. „Við erum að kanna hvort það eigi að vera með ellefu leikmenn á varamannabekknum í stórum úrslitaleikjum í Evrópuboltanum. Þannig er hægt að meta hóp hvers liðs betur og þjálfarar hafa úr fleirum að velja,“ segir Ferguson. „Þetta myndi samt ekki ganga upp í úrvalsdeildinni. Of margir stjórnarformenn myndu kvarta yfir öllum bónusunum sem þeir þyrftu að borga!“
Fótbolti Mest lesið Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Körfubolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Fótbolti Dagskráin í dag: Víkingur mætir Skaganum og Opna breska klárast Sport Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Fleiri fréttir Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Casemiro skoraði sjálfsmark í fyrsta heimaleiknum og Messi sneri aftur Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Tékkland ræður spænskan Ólympíumeistara Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Sjá meira