Erlent

Aðskilnaðarsinnar ganga til kosninga

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AP
Aðskilnaðarsinnar hliðhollir Rússlandi munu kjósa leiðtoga Austur-Úkraínu á morgun. Bandaríkin og Evrópusambandið, sem og stjórnvöld í Kænugarði, hafa sagt kosninguna vera ólöglega.

Reuters fréttaveitan segir frá því að kosningastarfsmenn í Donetsk hafi límt rauða, svarta og bláa fána uppreisnarmanna yfir fána Úkraínu á atkvæðakassa í borginni. Fyrir viku síðan voru þingkosningar í öðrum hlutum Úkraínu þar sem

Uppreisnarmennirnir segja að kosningin muni festa leiðtoga byltingarinnar í sessi. Íbúar Donetsk segja þó að kosningin muni engu breyta og að niðurstaða hennar sé fyrirfram ákveðin.

Núverandi forsætisráðherra uppreisnarinnar, Alexander Zakharchenko, sem er fyrrverandi rafvirki, er talinn vera með sigurinn tryggðan. Hann hefur meðal annars lofað ellilífeyrisþegum mánaðarlegum greiðslum svo þeir geti farið í ferðalög til Ástralíu. Þá hefur hann líkt kolavinnslu á svæðinu við olíuiðnaðinn í mið-Austurlöndum.

Andstæðingar hans hafa varla sést á almannafæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×