Erlent

Forsetar Afríkuríkja funda um ástandið í Búrkína Fasó

Atli Ísleifsson skrifar
Hershöfðinginn Isaac Zida fer nú tímabundið með völd í Búrkína Fasó.
Hershöfðinginn Isaac Zida fer nú tímabundið með völd í Búrkína Fasó. Vísir/AFP
Forsetar Gana, Nígeríu og Senegal eru nú staddir í Búrkína Fasó til að þrýsta á her landsins að koma völdum aftur í hendur borgaralegs leiðtoga.

Afríkusambandið hefur lýst því yfir að búrkínski herinn hafi brotið stjórnarskrá landsins þegar hann tók við völdum eftir að forsetinn Blaise Compaore neyddist til að segja af sér á föstudaginn.

Afríkusambandið gaf í gær búrkínska hernum tveggja vikna frest og hefur hershöfðinginn Isaac Zida, sem nú stýrir landinu, heitið því að verða við þeirri beiðni. Zida átti fund með Macky Sall, forseta Senegal, Goodluck Jonathan Nígeríuforseta og John Mahama Ganaforseta á flugvellinum í höfuðborginni Ouagadougou í dag.

Compaore sagði af sér eftir fjölmenn mótmæli þar sem var meðal annars kveikt í þinghúsinu. Hann hafði verið við völd síðastliðin 27 ár.

Compaore flúði í mótmælunum til Fílabeinsstrandarinnar þar sem hann dvelur nú í Yamoussoukro, höfuðborg landsins. Vangaveltur eru um að franski herinn hafi aðstoðað forsetann fyrrverandi að flýja land.


Tengdar fréttir

Herinn tók öll völd

Herinn í Búrkína Fasó hefur tekið öll völd í landinu, eftir að Compaoré forseti hraktist úr embættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×