Erlent

Trymbill AC/DC svo gott sem sloppinn

Jakob Bjarnar skrifar
AC/DC á í margvíslegum erfiðleikum um þessar mundir.
AC/DC á í margvíslegum erfiðleikum um þessar mundir.
Alvarlegar kærur á hendur trommara rokkhljómsveitarinnar ACDC hafa verið felldar niður.

Fréttastofa greindi frá því að gær að ástralski rokkarinn Phil Rudd væri sakaður um launráð fyrir dómsstólum í Nýja-Sjálandi, að hafa skipulagt morð á tveimur mönnum, en lögmaður Rudd hefur nú greint frá því að þeim kærum hafi verið vísað frá vegna skorts á sönnunargögnum. Rudd er þó ekki laus allra mála en hjá honum fundust ýmis eiturlyf þegar lögreglan réðst til inngöngu að heimili hans á þriðjudag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×