Enski boltinn

Van Gaal: Heimskulegt af mér að tala um þessa þrjá mánuði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Louis van Gaal.
Louis van Gaal. vísir/getty
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, segir það hafa verið heimskulegt af sér að minnast á það, að oftast væri hægt að sjá vinnu hans skila sér á fyrstu þremur mánuðum hans með nýtt lið.

Hollendingurinn lét hafa þetta eftir sér þegar hann tók við Manchester United í júlí, en að þremur mánuðum liðnum er United í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar og búið að tapa tveimur leikjum.

„Það var mjög heimskulegt af mér að tala um þessa þrjá mánuði því nú tala fjölmiðlar ekki um annað,“ sagði Van Gaal á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn West Brom sem fram fer í kvöld.

„Það er alltaf frammistaðan sem skiptir máli hjá liðinu, en hún hefur verið upp og niður. Við spiluðum ekki vel gegn Everton nema kannski fyrsta klukkutímann. En fótboltaleikur er 90 mínútur.“

„Ég tel stig ekki mikilvægt í þessari vinnu sem við erum í. Það eru leikirnir; hvernig við spilum uppstillingin og sú hugmyndafræði sem við vinnum eftir. Það þurfum við að dæma, ekki stigin,“ sagði Louis van Gaal.

Leikurin WBA og Manchester United verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 klukkand 19.00 í kvöld og klukkan 21.00 verður Messan í beinni útsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×