Erlent

Hætta ekki að bjarga hælisleitendum

Bjarki Ármannsson skrifar
Hælisleitendum frá Afríku teknir um borð báts ítalska sjóhersins.
Hælisleitendum frá Afríku teknir um borð báts ítalska sjóhersins. Vísir/AFP
Ítalski sjóherinn ætlar að halda áfram leitar- og björgunaraðgerðum í Miðjarðarhafinu samhliða fyrirhuguðum aðgerðum Evrópusambandsins, sem eiga að hefjast á laugardag. Fjöldi þeirra hælisleitenda sem reyna að sigla frá Afríku til Ítalíu á illa búnum bátum og flekum hefur stóraukist í ár og hafa um þrjú þúsund manns hið minnsta drukknað á leiðinni.

Björgunarstarf Ítala kallast Mare Nostrum (Hafið okkar) en Triton, nýtt verkefni á vegum ESB, hefst um helgina. Triton mun ekki búa yfir nema um þriðjungi þess fjármagns sem sett hefur verið í Mare Nostrum og hafa spurningar því vaknað um framtíð björgunarstarfs á svæðinu.

Þá munu helstu verkefni Triton munu ekki snúa að leit og björgun, heldur umsjá með hælisleitendum þegar þeir koma til Evrópu og þvíumlíkt. Í samtali við BBC segir fulltrúi ítalska sjóhersins að Ítalir verði þess vegna  að halda starfi sínu áfram í Miðjarðarhafinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×