Stærðin skiptir máli: Ber fyrir sig að typpið sé of lítið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2014 09:00 Bæjarstjórinn í Leer í Þýskalandi.
Karlmaður á sextugsaldri er sakaður um að hafa berað sjálfan sig fyrir táningsstúlku í Þýskalandi. Eiginkona hans sagði fyrir dómi að atburðarásin gengi ekki upp. Limur eiginmannsins væri of lítill til að hann gæti lafað út úr buxnaklaufinni.Daily Mail greinir frá en þar kemur fram að maðurinn, sem kallaður er Herbert O, hafi verið að afhenda stúlkunni pakka í ágúst í fyrra. Hann hafi sýnt henni meira en hún hafi beðið um. Stúlkan fór ásamt móður sinni samdægurs og lagði fram kæru hjá lögreglunni í Leer í Þýskalandi. Herbert neitar sök og ber því við að hann sé of smávaxinn að neðan til að athæfið hafi getað átt sér stað. Eiginkona hans er eitt vitna verjandans og staðfestir orð eiginmannsins. „Fyrirgefðu elskan mín en typpið þitt er of lítið til að geta hangið utan úr buxunum,“ sagði konan fyrir dómi. Í kjölfarið óskaði verjandinn eftir því að fram færi mæling á lim umbjóðanda síns. Dómarinn féllst á það. „Fyrst eiginkona hans hefur rætt svo opinskátt um þetta verðum við að fylgja þessu eftir,“ sagði Ulrike Andrees dómari. Verjandinn er staðráðinn í að verja mannorð Herberts og meðal annars neitað tilboði um sektargreiðslu gegn því að málið verði látið falla niður. Réttarfræðingurinn Norbert Burns segist málið einsdæmi.
Mest lesið „Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Innlent Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Innlent Björn kemst ekki til Melaniu Innlent Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Innlent Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Erlent Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Innlent Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Innlent Hálka í höfuðborginni og þungfært víða um land Innlent Endurskoða skipurit áður en ákvörðun um varaslökkviliðsstjóra verður tekin Innlent Hreyflaskipti á flugvél dýrari en einbýlishús Innlent Fleiri fréttir Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sjá meira