Komst að því að hún er gift bróður sínum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 11. ágúst 2014 11:46 Hjónin ætla sér að vera saman áfram, þrátt fyrir að vera systkin.
Brasilísk kona komst að því að hún hefur verið gift bróður sínum í áratug, í beinni útsendingu á útvarpsstöð þar í landi. Í þættinum hitti konan móður sína í fyrsta sinn í 38 ár, en móðir konunnar yfirgaf hana þegar hún var eins árs gömul. Konan hafði notið aðstoðar þáttarstjórnenda The Time is Now, sem er þáttur á útvarpsstöðinni Radio Globo, til þess að finna móður sína. Konan, sem heitir Adriana, ræddi við móður sína í þættinum, sem var á dagskrá í síðustu viku, og kom í ljós að hún átti eldri bróður að nafni Leandro. Adriana bætti þá við að hún væri gift manni sem ber sama nafn og eftir stutt spjall við móður sína kom í ljós að Adriana var gift bróður sínum. Leandro var átta ára gamall þegar móðir þeirra yfirgaf þau. Þau eiga sex ára dóttur saman. „Ég trúi þessu ekki,“ sagði Adriana í þættinum og bætti við: „Nú er ég hrædd um að hann fari frá mér. Ég elska hann ótrúlega mikið." Í viðtali eftir að þátturinn var sendur út sagði Adriana þó að systkinin ætluðu að halda áfram að vera saman og bætti við að það skipti þau engu máli hvaða álit aðrir höfðu á þeirri ákvörðun. Þau kynntust fyrir tíu árum síðan. Þau höfðu bæði leitað móður sinnar lengi og hvorugt vildi gefast upp á leitinni. Þau eru frá sama bæ í Brasilíu og hittust fyrst þegar Adriana flutti aftur heim, eftir að hún skildi við fyrrum eiginmann sinn. „Við verðum saman að eilífu," sagði hún og fullyrti: „Þetta gerðist allt vegna þess að Guð vildi það."
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Sjá meira