Ólympíuvellir í Aþenu í algerri niðurníðslu tíu árum eftir leikana Atli Ísleifsson skrifar 13. ágúst 2014 11:07 Ólympíuleikarnir í Aþenu stóðu yfir í sautján daga og kostuðu um 8,5 milljarða evra, um tvöfalt meira en upphaflega var áætlað.
Tíu ár eru í dag síðan Ólympíuleikarnir í Aþenu voru settir. Margir spyrja sig hvort leikarnir hafi verið of stór biti fyrir grískan efnahag á sínum tíma, en fjöldi þeirra bygginga og leikvanga sem nýttir voru á leikunum eru nú í algerri niðurníðslu. Þó að fáir kenni leikunum einum um þær miklu efnahagsþrengingar sem Grikkir hafa gengið í gegnum síðustu ár, þá vilja margir meina að Grikkir hafi ekki nýtt sér þann meðbyr sem við þeir fengu árið 2004. Gríski lyftingamaðurinn og gullverðlaunahafinn Pyrros Dimas og situr nú á þingi fyrir gríska sósíalista er einn þeirra. „Við gerðum einfaldlega mestu mistök í sögu okkar. Við slökktum á öllu, lokuðum leikvöngunum, leyfðum þeim að grotna niður og allt stöðvaðist þar,“ segir Dimas í samtali við AP. Dimas segir Grikki hafa varið miklum fjárhæðum í verkefni sem hefur nú verið lokað og grotna niður. „Það voru byggingar sem hefðu átt að kosta tvær eða þrjár milljónir evra, en urðu skyndilega svo stór að þau kostuðu 13 eða 14 milljónir. Það var engin stjórn á neinu.“ Fáir leikvangar sem notaðir voru á leikunum í Aþenu hafa öðlast nýtt líf eftir að leikunum lauk. Badmintonhöllinni var breytt í tónleikahöll, en borðtennis- og fimleikahöllin eru báðar til sölu. Þá hefur strandblakvöllurinn og keppnisbrautin fyrir róður nær ekkert verið notaðar. Flestir leikvangarnir standa einfaldlega auðir. Talið er að leikarnir hafi kostað um 8,5 milljarða evra, tvöfalt meira en upphaflega var áætlað. Nýlegar myndir sýna greinilega hvernig leikvangar og ólympíuþorpið hafa drabbast niður. Enn fleiri myndir af leikvöngum og Ólympíuþorpinu má meðal annars sjá á Baltimore Sun.Tveggja ára gömul mynd af manni sem stendur fyrir framan ónýttan gosbrunn með ólympíuhringjunum í Ólympíuþorpinu.Vísir/AFPHokkí-völlurinn hefur lítið sem ekkert verið notaður síðustu árin og er verulega farinn að láta á sjá.Vísir/APGríski stjórnmálamaðurinn og ólympíumeistarinn Pyrros Dimas hleypur daglega á gömlum æfingavelli við Ólympíuleikvanginn í Aþenu.Vísir/APÓlympíuþorpið var sérstaklega byggt fyrir leikana sem stóðu yfir í sautján daga.Vísir/AFPGarður þar sem Ólympíunefndarmenn gróðursettu ólífutré í ágústmánuði 2004 þegar leikarnir fóru fram.Vísir/APJuan Antonio Samaranch, þáverandi forseti alþjóða ólympíunefndarinnar, var einn þeirra sem gróðursetti ólífutré.Vísir/APStrandblakvöllurinn í Neo Faliro í suðurhluta Aþenuborgar stendur auður og hefur nær ekkert verið notaður frá því að leikunum lauk.Vísir/AP
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira