Erlent

Stunginn til bana í Osló

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/afp
Rúmlega fimmtugur karlmaður var stunginn til bana í Osló í gærkvöldi.

Árásin átti sér stað í hverfi sem kallast Toyen í borginni. Einn maður er grunaður um verknaðinn og var hann handtekinn í húsnæðinu þegar lögreglan kom á staðinn.

Sjúkraliðar fluttu manninn á Ulleval sjúkrahúsið í Ósló og var hann þá með alvarlega innvortis áverka. Hann lést síðan skömmu síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×