Mega byrja að vinna tíu ára gömul Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. júlí 2014 10:30 vísir/afp
Samkvæmt nýjum lögum í Bólivíu mega börn tíu ára og eldri fara út á vinnumarkað, með samþykki foreldra þeirra og gegn því að þau stundi nám. Varaforseti landsins, Alvaro Garcia Linera, skrifaði undir lög þess efnis síðastliðinn fimmtudag og er Bólívía því fyrsta landið í heiminum til þess að samþykkja slík lög. Fátækt í Bólivíu er mikil, ein sú mesta í Suður-Ameríku, og segja stjórnvöld þarlendis lög sem þessi nauðsynleg til að koma landinu úr þessari miklu fátækt. Þarna fái fjölskyldur inn aukatekjur sem geti hjálpað til við að draga úr þeim fjárhagslegu byrðum sem stór hluti íbúa Bólivíu þarf að horfast í augu við. Mikið sé um barnaþrælkun þar í landi og að með þessu sé hægt að tryggja öryggi og réttindi barnanna. Talið er að um ein milljón barna á aldrinum fimm til sautján ára séu á vinnumarkaði þar í landi. Þau séu því um fimmtán prósent af öllu vinnuafli. Lögin brjóta í bága við sáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem segir að börn þurfi að vera fjórtán ára gömul til þess að mega fara út á vinnumarkað. Lögin hafa því verið harðlega gagnrýnd af Alþjóðavinnumálastofnun (ILO) sem vinnur meðal annars að því að uppræta barnaþrælkun.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Sjá meira