„Við tottuðum Bandaríkjamenn“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júní 2014 17:49 Radek Sikorski, utanríkisráðherra Póllands. VISIR/AFP
Radek Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sem almennt er talinn einn helsti stuðningsmaður Bandaríkjanna í Evrópu, sagði á upptöku sem kom upp á yfirborðið nú á sunnudag að bandalag ríkjanna tveggja væri „einskis virði“.„Samband Bandaríkjanna og Póllands er einskis virði. Það er meira að segja skaðlegt því það býr til falska öryggistilfinningu í Póllandi,“ segir Sikorski meðal annars á hljóðbút sem birst hefur úr samtali hans við Jacek Rostowski, fyrrum fjármálaráðherra Póllands. Ekki er vitað hver tók upp samtali en það er talið hafa átt sér stað í vor. Getgátur eru uppi um að rússneska leyniþjónustan eigi í hlut í ljósi þess að henni hefur einnig verið gefið að sök að hafa lekið álíka pínlegu samtali í febrúar þar sem háttsettur bandarískur stjórnmálamaður segir Evrópusambandinu meðal annars að „fara í rassgat.“Eftir að viðmælandi Sikorskis spyr hvers vegna hann efist um bandalag ríkjanna segir utanríkisráðherrann það vera „kjaftæði“. „Við munum þurfa að kljást bæði við Þjóðverja og Rússa og við munum halda að allt sé í stakasta lagi því við tottuðum Bandaríkjamenn. (Við erum) fávitar. Algjörir fávitar,“ segir Sikorski á hljóðbútnum. Búist er við því að allt samtalið muni rata í pólska fjölmiðla á næstu dögum. Í samtalinu lýsir Sikorski einnig hugfari Pólverja sem „Murzyńskość“, en hugtakið hefur verið þýtt sem það að „hugsa eins og blökkumaður“. Lekinn er talinn hinn meinlegasti fyrir flokk Sikorskis, Platforma Obywatelsk, sem hefur lengi þurft að kjlást við óvarlegt orðfæri flokksmanna sinna og hafa stjórnmálaskýrendur þar í landi lýst honum sem miklu reiðarslagi fyrir áframhaldandi samskipti Bandaríkjanna og Póllands. Forseti Póllands, Bronislaw Komorowski, árétti í dag í samtali við þarlenda fjölmiðla að Bandaríkin væru ennþá mikilvægur bandamaður landsins.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira