Dæmdir til að slá gras eftir að hafa hópnauðgað stúlku Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. júní 2014 20:26 "Ég er Liz“ stendur á bol þessa mótmælanda. VISIR/AFP
Hundruð mótmælenda í Keníu kröfðust í gær réttlætis fyrir stúlku sem var hrottalega hópnauðgað í júní í fyrra en ódæðismennirnir voru dæmdir til þess að slá gras í hegningarskyni. Málið vakti mikla alþjóðlega athygli í fyrra og á aðra milljón manns skrifuðu undir áskorun til kenískra yfirvalda þar sem krafist var þyngri refsingar yfir mönnunum. „Við erum hér saman komin til að krefjast réttlætis fyrir stelpurnar okkar,“ sagði Jennifer Lucheli, fimm barna móðir sem tók þátt í mótmælunum í gær skammt undan landamærum Úganda en tekið var að mótmæla að nýju í kjölfar endurupptöku málsins yfir einum sakborninganna. Hinu sextán ára gamla fórnarlambi, sem er þekkt undir dulnefninu Liz, var nauðgað af sex mönnum síðastliðið sumar er hún var að labba heim úr jarðarför afa síns. Eftir árásina hentu mennirnir Liz í djúpan skurð, fullan af skólpi. Hún hlaut margvíslega áverka, þeirra á meðal voru bakbrot og innvortis blæðingar. Mál Liz komst í heimspressuna í kjölfar fyrrgreinds dómsúrskurðar þegar þremur mannanna sem áttu í hlut var gert að slá grasið í kringum lögreglustöð bæjarins í hegningarskyni. Lögreglustjórinn David Kimaiyo dró vitnisburð Liz í efa í nóvember síðastliðnum en hann taldi of stuttan tíma hafa liðið á milli öskra hennar og þangað til þorpsbúar liðsinntu henni til að sex menn hefðu getað nauðgað Liz. Mótmælendur hafa fengið sig fullsadda á vægum dómum í kynferðisbrotamálum sem þeir segja hafa verið langvarandi vandamál í landinu.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Sjá meira