„Selfie-hobbitar“ fjarlægðir Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júní 2014 21:05 MYND/YK.KZ
Minnisvarði í borginni Ust-Kamenogorski í Kasakstan var fjarlægður í gær eftir að hafa orðið íbúum borgarinnar mikið aðhlátursefni. Hann hafði þá einungis staðið uppi í rúman sólarhring. Samfélagsmiðlar í landinu loguðu eftir að hann var opinberaður nú á mánudag en mörgum þótti eins og mennirnir á minnisvarðanum væru að taka sjálfsmynd, eða „selfie“. Aðrir voru ekki lengi að benda á líkindi þeirra með hobbitunum úr hugarheimi J.R.R. Tolkien. Styttan var byggð til að heiðra tvo mektarmenn frá 19. öld; Abay Kunanbayev, kasakskan rithöfund og hinn rússneska Yevgeny Mikhaelis sem var vísindamaður og ötull talsmaður lýðræðis fyrir íbúa svæðisins. Annar höfunda verksins, myndhöggvarinn Vladimir Samoylov, viðurkenndi sjálfur að það væri eitthvað heldur einkennilegt við minnisvarðann. Hann sagði að þeir sem unnu að styttunni hefðu ekki fengið nægan tíma til að leggja lokahönd á verkið. „Það var þrýst of mikið á okkur og þetta var niðurstaðan,“ sagði hann í samtali við kasöksku fréttasíðuna Yk.kz.Sem fyrr segir hefur styttan verið fjarlægð og yfirvöld á svæðinu hafa sagt myndhöggvurunum að laga hana hið snarasta.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira