„Fólk horfir með kvíða til næstu daga og vikna“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 5. maí 2014 19:15
Fjórir úkraínskir hermenn létust í hörðum átökum milli hersveita og liðsmanna aðskilnaðarsinna í borginni Sloviansk í dag. Íslendingur, sem leiðir eftirlitssveit á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Kænugarði, segir fólk óttast að átökin stigmagnist með degi hverjum og breiðist hratt út. Úkraínski herinn lokaði í gær þjóðveginum til Slóvíansk, en borgin hefur meira og minna verið á valdi vopnaðra aðskilnaðarsinna síðustu vikur, þar sem þeir hafa komið sér fyrir í opinberum byggingum og komið upp vegatálmum til að hindra að úkraínski herinn komist inn í borgina. Til harðra átaka kom í dag þegar herinn sótti inn í miðborgina. Staðfest er að fjórir hafi látið lífið og tugir særst. Þá var úkraínsk herþyrla skotin niður í útjaðri borgarinnar. Átökin í Úkraínu hófust í Kænugarði í nóvember og færðust síðan yfir á Krímskaga og í austurhéruðin. Síðustu daga hafa svo blossað upp átök í suðurhluta landsins og hátt í fjörtíu létust á föstudag þegar kveikt var í byggingu í Odessa þar sem aðskilnaðarsinnar höfðu leitað skjóls. Stefán Haukur Jóhannesson hefur starfað á vegum ÖSE í Kænugarði síðustu vikur. Hann segir fólk óttast að átökin í Odessa séu fyrirboði um það sem koma skal, og að spennan muni stigmagnast í aðdraganda forsetakosninganna 25 maí næstkomandi. „Vissulega er undirliggjandi spenna og fólk horfir með kvíða til næstu daga og vikna. Það sem er að gerast í austurhluta landsins og núna suðurhlutanum er alveg skelfileg þróun mála. Fólk vonast til að það róist aðeins en það er mjög erfitt að segja til um framhaldið,“ segir Stefán.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira