Fyrirliði fyrsta heimsmeistaraliðs Brasilíu lést í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2014 11:45 Styttan af Hilderaldo Bellini fyrir utan Maracana-leikvanginn. Vísir/AFP
Hilderaldo Bellini var fyrirliði Brasilíumanna á HM í Svíþjóð 1958 þegar brasilíska þjóðin eignaðist sína fyrstu heimsmeistara í fótbolta. Bellini fékk ekki að upplifa HM í sínu eigin landi í sumar því hann lést í gær 83 ára gamall. Hilderaldo Bellini lést á sjúkrahúsi í São Paulo en hann var búinn að vera með Alzheimer-veiki í mörg ár. Bellini fékk hjartaáfall fyrir þremur árum síðan og gat ekki talað eftir það. Bellini verður jarðaður í heimabæ sínum Itapira á föstudaginn. „Brasilískur fótbolti og aðdáendur hans upplifa nú mikla sorg eftir að við misstum frábæran fyrirliða. Ég fékk tækifæri til að kynnast honum þegar hann spilaði með São Paulo. Hann var frábær varnarmaður, heiðursmaður og mikill fagmaður," sagði Jose Maria Marin, forseti brasilíska knattspyrnusambandsins. Hilderaldo Bellini var ekki aðeins fyrsti fyrirliði heimsmeistaraliðs Brasilíu því hann var einnig fyrsti fyrirliði heimsmeistara sem lyfti bikarnum hátt á loft eftir að hafa tekið við hinum. Síðan þá hefur það verið venjan þegar fyrirliðar taka við bikurum. Fyrir utan Maracana-leikvanginn er stytta af Hilderaldo Bellini með HM-bikarinn hátt á lofti eftir sigurinn í Stokkhólmi árið 1958. Hilderaldo Bellini varð einnig heimsmeistari með Brasilíu árið 1962 en var þá ekki í liðinu í úrslitaleiknum og Mauro Ramos tók við heimsbikarnum. Hann var einnig í HM-hópi Brasilíumanna á HM í Englandi 1966.
Fótbolti Mest lesið Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Fótbolti Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn Fótbolti Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Fótbolti Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Fótbolti „Hörku barátta tveggja góðra liða“ Fótbolti Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ „Ætluðum ekki heim án sigurs“ „Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Arnór og Ari skoruðu er Norrköping hafði betur í Íslendingaslag Öruggur sigur Börsunga gegn níu heimamönnum Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Daníel Tristan skoraði í stórsigri Ísak skoraði enn eitt markið fyrir Lyngby Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Fáar spilað leik á þessum velli Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Englarnir frá LA án sigurs í átta leikjum „Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Sjá meira