"Ég gerði þetta til að vernda fjölskyldu mína“ Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 27. janúar 2014 20:00 „
Ég myndi gera þetta aftur til að vernda móður mína og systur.“ Þetta segir spænsk stúlka sem hlaut árs fangelsisdóm fyrir fíkniefnasmygl sem hún var neydd til að taka þátt í. Héraðsdómur taldi sögu hennar trúverðuga en ákvað engu að síður að læsa stúlkuna á bak við lás og slá. Stúlkan er 21 árs gömul og kom til landsins í október síðastliðnum frá Spáni. Tollverðir stöðvuðu hana og ljós kom að hún var með rétt rúmlega 420 grömm af kókaíni innvortis. Þessi efni voru ætluð til sölu hér á landi en götuvirði þeirra nemur rúmlega 630 þúsund krónum. Stúlkan var ákærð og játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi. Hún fullyrti að hafa verið burðardýr, neydd til að fara þessa ferð til Íslands af tveimur mönnum sem hótuðu að misþyrma fjölskyldu hennar. Hún sagði að mennirnir hefðu komið pakkningum fyrir í leggöngum hennar. Þegar komið var til landsins þurfti að svæfa stúlkuna svo hægt væri að sækja efnin. Í dómsorði segir að saga stúlkunnar sé trúverðug. Þetta, ásamt játningu hennar, varð til refsilækkunar. Héraðsómur Reykjaness dæmdi stúlkuna þó í eins árs fangelsi og vísaði sér til rökstuðnings í styrkleika efnanna. Hún hefur blendnar tilfinningar til niðurstöðunnar. „Þetta var bæði gott og slæmt. Af því að tíminn er stuttur og ég er hér á öruggum stað. Það slæma er auðvitað að þetta er fangelsi en það góða er öryggið. Það mun ekkert koma fyrir mig hér. En ég sakna auðvitað fjölskyldu minnar.“ Hún fór fram á að nafn hennar yrði ekki birt enda óttast hún um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar ytra. Hún segir þessa lífsreynslu hafa verið hrikalega, engu að síður hafi móðir hennar og systir þurft að hafa forgang. „Málið er að maður getur ekki vitað hvernig maður bregst við í þessari aðstöðu fyrr en á reynir. Í mínu tilviki þá gerði ég þetta til að vernda fjölskyldu mína.“ „Í öðru lífi hefði ég ekki breytt neinu. Þetta er fjölskylda mín. Systir mín og mamma. Þetta var annað hvort þær eða ég.“
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira