Erlent

Hermennirnir féllu fyrir árás NATO herþotu

Randver Kári Randversson skrifar
Bandarískur hermaður í Afganistan.
Bandarískur hermaður í Afganistan. Vísir/AFP
NATO hermennirnir fimm sem féllu í Afganistan í gær voru allir bandarískir og nú hefur verið greint frá því að þeir urðu fyrir árás NATO herþotu.

Hermennirnir voru í eftirlitsferð í suðurhluta Afganistan en eftirlit hefur mjög verið hert á þessum slóðum vegna forsetakosninga sem fram fara í landinu á laugardag. Þeir urðu fyrir flugskeytaárás talibana og óskuðu eftir að þeim yrði komið til aðstoðar með loftárás á hinar óvinveittu hersveitir. Fyrir mistök urðu hermennirnir fimm einnig fyrir loftárásinni.

Nú hafa 2328 Bandaríkjamenn fallið í Afganistan frá innrás NATO í landið árið 2001.


Tengdar fréttir

Fimm hermenn Nato féllu í Afganistan

Fimm Nato hermenn féllu í Afganistan í gær í suðurhluta landsins. Í tilkynningu frá talsmanni Nato í landinu sem barst í morgun er ekki greint nánar frá málavöxtum og ekki kemur fram hverrar þóðar mennirnir voru. Það sem af er ári hafa 36 Nato hermenn fallið í Afganistan, þar af átta í júnímánuði einum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×