Óttast að barnavændi muni margfaldast í kringum HM Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. júní 2014 17:55 Börn allt niður í tíu ára aldur eru neydd til að selja líkama sinn til að afla fjár. vísir/afp
Barnavændi hefur aukist mikið í Brasilíu upp á síðkastið. Börn allt niður í tíu ára aldur eru neydd til að selja líkama sinn til að afla fjár, en talið er að með því að selja barn í vændi á meðan heimsmeistaramótinu stendur sé hægt að þéna nógu mikinn pening til þess að brauðfæða fjögurra manna fjölskyldu í heilt ár. Búist er við að um sex hundruð þúsund erlendir knattspyrnuunnendur muni leggja leið sína til Brasilíu til að fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem hefst á fimmtudag og óttast er að barnavændi muni margfaldast í kringum keppnina. Börnin, sem tekin eru frá fátækari svæðum landsins, eru látin neyta eiturlyfja, þá einna helst krakks, klædd í djarfan fatnað og förðuð. Til að seðja hungur þeirra eru þau látin lykta af lími. Þá eru börn frá fátækum svæðum í öðrum heimsálfum, til dæmis Afríku, flutt inn til landsins á vegum rússnesku mafíunnar. Mannréttindasamtök segja yfirvöld í Brasilíu líta til hliðar þegar kemur að þessu máli og segja engan vilja vera af þeirra hálfu til að stöðva þennan mikla vanda. Forseti Brasilíu, Dilma Rousseff, sagði þó alla ferðamenn velkomna til Brasilíu vegna heimsmeistaramótsins, þeir yrðu hinsvegar allir að gera sér grein fyrir því að vændiskaup á börnum yrðu ekki liðin. Barnavændi í Brasilíu er með því mesta í heiminum og hefur verið vandamál lengi. Vandamálið er slíkt að landið fylgir fast á hæla Tælands sem áfangastaður fyrir barnaníðinga, slíkt er framboðið.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira