Bjóða upp á surströmming fyrir fund sænskra nasista Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2014 10:58 Surströmming þykir lykta frekar illa þó að margir álíti hann herramannsmat. Vísir/AFP
Hópur aðgerðasinna hafa ákveðið að bjóða til surströmmingveislu á Götaplatsen í sænsku borginni Gautaborg þar sem nýnasistar hafa boðað þar til fundar seinna í dag. „Surströmming er gömul og fín sænsk hefð sem nær aftur til sextándu aldar þegar saltskortur kom upp á tímum Gustavs Vasa og þá fyrst og fremst í norðurhluta landsins,“ segir einn forsvarsmanna veislunnar, en margir telja surströmming vera þá matvöru sem lykti einna verst í öllum heiminumÍ frétt GT segir að forsvarsmenn veislunnar hafi talið það viðeigandi að bjóða liðsmönnum nýnasistaflokksins, Flokks Svía, til hefðbundinnar sænskrar veislu. Ekki er nákvæmlega ljóst hvaða hópur stendur á bakvið veisluna, en forsvarsmenn hennar lýsa sjálfum sér sem „grasrótarhreyfingu“. Gestir veislunnar hafa hvatt menn til að mæta nokkru fyrir fund nýnasistanna þannig að lyktin nái að dreifa sér almennilega. Um 300 manns hafa nú boðað komu sína til veislunnar á Facebook. Þá á lögregla einnig von á fjöldi annarra mótmælenda vegna fundar nýnasistanna. Lögregla verður því með talsverðan viðbúnað á staðnum. Surströmming er síld sem er látin gerjast í viðartunnum í nokkra mánuði og síðar komið fyrir í niðursuðudósum þar sem gerjunin heldur áfram. Dósin bólgnar þá út, en þegar hún er opnuð gýs upp fnykur sem þykir minna á rotin egg.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira