Líta á ferð bílalestar sem innrás í Úkraínu Randver Kári Randversson skrifar 22. ágúst 2014 23:58 Vísir/AFP
Ákvörðun Rússa um að senda meira en 100 vörubíla inn í austurhluta Úkraínu án leyfis úkraínskra yfirvalda hefur mætt hörðum viðbrögðum á Vesturlöndum. Úkraínumenn líta á ferð bílalestarinnar sem brot á fullveldi sínu og innrás inn í landið. Bílarnir höfðu beðið við landamærin að Úkraínu í meira en viku, en grunur lék á að í þeim væru vopn ætluð aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins. Tollverðir hófu að skoða þá síðdegis á fimmtudag, en í dag ákváðu Rússar að senda bílalestina af stað inn í Úkraínu áður en búið var að framkvæma tollskoðun á þeim öllum. Rússar halda því hins vegar fram að bílarnir flytji aðeins hjálpargögn, svo sem barnamat og kornvörur. Á vef BBC kemur fram að fyrstu vörubílarnir séu þegar komnir að borginni Luhansk, sem er á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna. Sameinuðu þjóðirnar héldu neyðarfund vegna málsins í dag og hafa Bandaríkin og Evrópusambandið farið fram á að bílunum verði snúið til baka. Þá telja fulltrúar NATO að þetta muni auka á spennuna á svæðinu enn frekar. Í harðorðri yfirlýsingu sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, að atburði dagsins bæri að taka mjög alvarlega, einkum í ljósi þess að Rússar hafi allt frá miðjum ágústmánuði stóraukið hernaðarleg afskipti sín af átökunum í austurverðri Úkraínu. Alls hafa yfir 2000 manns látist og yfir 330 þúsund manns yfirgefið heimili sín vegna átakanna í landinu sem nú hafa staðið í um fjóra mánuði.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira