Erlent

Má ekki fara á barinn neins staðar í London

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Yfir 35.000 staðir eru með vínveitingaleyfi í London en Rodney Williams má ekki fara á neinn þeirra næstu 25 árin.
Yfir 35.000 staðir eru með vínveitingaleyfi í London en Rodney Williams má ekki fara á neinn þeirra næstu 25 árin. Vísir/Getty
Breskum manni hefur verið meinaður aðgangur að öllum vínveitingastöðum í London næstu 25 árin eftir að hann játaði fjölmarga þjófnaði víða um borgina. Yfir 35.000 staðir eru með vínveitingaleyfi í Lundúnum.

Maðurinn heitir Rodney Williams. Hann var handtekinn í apríl síðastliðnum eftir að hafa stolið handtösku af konu á bar í austur-London.

Williams mun í framtíðinni aðeins geta keypt áfengi í matvöruverslunum eða á vínveitingastað með skriflegu leyfi frá framkvæmdastjóra staðarins.

Steve Baker, talsmaður vínveitingaeftirlitsins í Bretlandi, sagði í samtali við The Independent að hann teldi ólíklegt að einhver vínveitingastaður myndi vilja hleypa Williams inn. Hins vegar gæti það reynst þrautin þyngri að bera kennsl á manninn en það væri í höndunum yfirvalda að veita stöðunum nægilegar upplýsingar svo hægt verði að framfylgja refsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×