Erlent

Glazyev vandar Poroshenko ekki kveðjurnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Úkraínskir skæruliðar hlynntir Rússum hvílast í byrgi sínu utan við Slovyansk, í austanverðri Ukraine.
Úkraínskir skæruliðar hlynntir Rússum hvílast í byrgi sínu utan við Slovyansk, í austanverðri Ukraine.
Sergeo Glazyev, einn helsti ráðgjafi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, réðst harkalega að Petro Poroshenko forseta Úkraínu í gær en Poroshenko mun skrifa undir nýjan samstarfssamning við Evrópusambandið síðar í dag.

Glazyev segir samninginn ólöglegan og hann bætti um betur í viðtali hjá BBC og kallaði Poroshenko nasista. Hann var einnig harðorður í garð ESB sem hann segir að hafi þröngvað Úkraínumönnum til að skrifa undir samninginn og átt þátt í að koma nasistum til valda í landinu.

Vikulangt vopnahlé sem verið hefur í Úkraínu er nú að renna út og raunar var það aldrei að fullu virt. Aðskilnaðarsinnar í austurhluta landsins tilkynntu þó í morgun að fjórum eftirlitsmönnum frá ÖSE, öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefði verið sleppt en þeir voru handsamaðir af uppreisnarmönnum fyrir mánuði síðan. Fjórir aðrir starfsmenn eru þó enn í haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×