Snowden sagður hafa notað einfalda tækni til að afrita leyniskjölin Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. febrúar 2014 10:45 Uppljóstranir Snowdens vöktu hörð viðbrögð. Nordicphotos/AFP
Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden notaði sáraeinfalda tækni þegar hann afritaði þúsundir leyniskjala frá Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA). Þetta hefur bandaríska dagblaðið The New York Times eftir starfsmönnum leyniþjónustunnar, sem hafa gert rannsókn á því hvernig Snowden komst yfir þær upplýsingar sem hann lak svo til fjölmiðla. Sjálfur segir Snowden að þarna sé enn verið að afvegaleiða almenning um það, sem hann gerði: „Það er kaldhæðnislegt að embættismenn séu að láta blaðamenn fá leynilegar upplýsingar í tilraun til að gera mig tortryggilegan fyrir það að ég lét blaðamenn fá leynilegar upplýsingar. Munurinn er sá að ég gerði það til þess að upplýsa almenning um athafnir stjórnvalda, en þeir eru að gera það til þess að afvegaleiða almenning um mínar athafnir,” er haft eftir Snowden í The New York Times, fyrir milligöngu lögmanns hans. Snowden er sagður hafa notað sjálfvirkt leitarforrit, vefskriðil, sem bæði er ódýrt og auðvelt að útvega sér, til þess að leita uppi og afrita gögnin þegar hann starfaði sem verktaki hjá NSA. Þessar fullyrðingar vekja enn upp spurningar um það hvernig óbreyttum verktaka tókst að útvega sér viðkvæmar upplýsingar frá voldugustu njósnastofnun veraldar.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent Andrew látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Sjá meira