Pútín og Porosjenko ná saman um framhald vopnahlés Randver Kári Randversson skrifar 30. júní 2014 16:34 Pútín og Porosjenko hafa snúið bökum saman í deilunni í Úkraínu. Vísir/AFP
Leiðtogar Úkraínu og Rússlands hafa náð samkomulagi um að tryggja tvíhliða gagnkvæmt vopnahlé milli aðskilnaðarsinna og úkraínskra yfirvalda og auka landamæraeftirlit milli ríkjanna. Reuters greinir frá þessu. Frá þessu var greint eftir samtal milli Angelu Merkel, Þýskalandskeisara, Vladimirs Pútín, Rússlandsforseta, Petros Porosjenkos, forseta Úkraínu og Francois Hollande, Frakklandsforseta, en þau ræddust við í gegnum síma, í annað skiptið á jafn mörgum dögum. Samkomulag náðist milli Pútíns og Porosjenkos um að unnið verði að frelsun gísla og fanga og að komið verði á fót efnislegum samningaviðræðum um lausn mála í Úkraínu með þátttöku fulltrúa úkraínskra og rússneskra stjórnvalda auk fulltrúa aðskilnaðarsinna. Á sunnudag hvatti Porosjenko til þess að Rússar styrktu eftirlit á landamærum sínum til að koma í veg fyrir að aðskilnaðarsinnar flyttu vopn frá Rússlandi til átakasvæðanna í austurhluta Úkraínu. Pútín hefur í viðræðunum lagt áherslu á að vopnahléið verði framlengt og að komið verði á fót eftirliti með framkvæmd þess, með þátttöku Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Einnig hefur hann lagt til að þriðja lota viðræðna milli stjórnvalda í Kænugarði og fulltrúa héraðanna í suðausturhluta Úkraínu fari fram sem fyrst. Evrópusambandið hafði lýst því yfir að gripið yrði til frekari refsiaðgerða gegn Rússum ef aðskilnaðarsinnar sýndu ekki vilja til að draga úr átökum á svæðinu áður en vopnahléið sem úkraínsk stjórnvöld lýstu yfir þann 20. júni rennur úr gildi.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira