Tímósjenkó býðst til að fórna sér fyrir ESB Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. nóvember 2013 08:00 Um þúsund manns tóku í fyrrakvöld þátt í mótmælum gegn ákvörðun þingsins. Mynd/EPA
Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, segist reiðubúin til að hvetja Evrópusambandið til að falla frá kröfu um að hún verði látin laus úr fangelsi, ef það megi verða til þess að Úkraínustjórn undirriti samstarfssamning við ESB á leiðtogafundi þess í næstu viku. Tímósjenkó hefur afplánað tvö ár af sjö ára fangelsisdómi fyrir spillingu, en Mannréttindadómstóll Evrópu komst í vor að þeirri niðurstöðu að handtaka hennar hefði orkað tvímælis. Úkraínustjórn hefur unnið að samstarfssamningi við Evrópusambandið, sem til stóð að undirrita í næstu viku, en stjórnin hætti við nú í vikunni vegna þess að hún treysti sér ekki til að uppfylla það skilyrði ESB að Tímósjenkó fái heimild til að leita sér lækninga utan Úkraínu. Þess í stað vill stjórnin að skipuð verði sameiginleg nefnd með fulltrúum frá Úkraínu, ESB og Rússlandi, sem fái það verkefni að bæta tengslin milli ESB og landanna tveggja. Rússnesk stjórnvöld hafa verið mjög andsnúin því að Úkraína styrki tengslin við Evrópusambandið, en langvarandi pólitískur ágreiningur hefur verið innan Úkraínu um það hvort landið eigi frekar að halla sér að Rússlandi eða Evrópu. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fordæmdi í vikunni þann þrýsting, sem Rússar eru sagðir hafa beitt Úkraínustjórn í þessu máli: „Fréttir um að Rússar hafi heldur betur aukið þrýsting á Úkraínu. Ruddaleg pólitík hótana og kúgunar. Vilja undirgefni,“ skrifaði Bildt á Twitter-síðu sína. Íbúar í austurhluta Úkraínu líta margir nánast á sig sem Rússa og vilja hafa tengslin við Rússland áfram sem nánust. Íbúar vesturhlutans líta hins vegar frekar á sig sem Úkraínumenn og vilja heldur tengjast Evrópu en Rússlandi.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira