Sekt fyrir að fljúga með uppljóstrara 15. júní 2013 00:00 STyðja Snowden Flugfélögum hefur verið bannað að hleypa Edward Snowden um borð í vélar til Bretlands. Hann nýtur þó víða stuðnings fyrir uppljóstranir sínar.Nordicphotos/AFP
Flugfélög um allan heim gætu átt yfir höfði sér sekt ef þau hleypa Edward Snowden, sem lak upplýsingum um eftirlit bandarískra stjórnvalda á síma- og netnotkun, um borð í vél til Bretlands. Bresk stjórnvöld gáfu út viðvörun þess efnis fyrr í vikunni, og tiltaka að Snowden verði líklega neitað um landvistarleyfi við komuna til landsins. Viðkomandi flugfélag gæti þurft að greiða sekt upp á allt að 2.000 sterlingspund. Snowden, sem starfaði hjá leyniþjónustu Bandaríkjanna, er enn talinn vera í Hong Kong. Hann hefur ekki verið ákærður fyrir glæp og engin handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum. Ef fleiri lönd fylgja fordæmi Bretlands gæti farið að þrengja að Snowden, sérstaklega ef hann fengi ekki hæli í Hong Kong. Kínversk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um mál hans, en fjölmiðlar þar í landi, nátengdir kommúnistaflokknum, hafa velt því upp hvort ekki væri fengur í því fyrir Kína að halda Snowden í landinu, frekar en að reka hann á brott, og fá þannig frá honum enn frekari upplýsingar. - þj
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Sjá meira