Verðandi Íransforseti gagnrýnir forvera sinn Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. júlí 2013 16:13 Hasan Rúhani tekur brátt við af Mahmúd Ahmadínedjad. Mynd/AP
Hasan Rúhani, sem tekur við sem Íransforseti í næsta mánuði, gagnrýnir forvera sinn harðlega og segir efnahagsástandið í landinu mun verra en Mahmúd Ahmadínedjad hefur gefið til kynna. Rúhani segir að verðbólgan sé komin í 42 prósent en ekki 32 prósent, eins og gengið hefur verið út frá. Þá segir hann að á árunum 2006 til 2012 hafi aðeins 14 þúsund ný störf orðið til í landinu, sem stangast mjög á við yfirlýsingar Ahmadínedjads um að stjórn hans hafi skapað hundruð þúsunda starfa frá því hann tók við árið 2005. Það er fréttastofan AP sem skýrir frá þessu. Rúhaní hafði verið iðinn við að gagnrýna Ahmadínedjad á síðustu árum, meðal annars fyrir að fá erlend ríki upp á móti sér. Alþjóðlegar refsiaðgerðir hafa bitnað illa á almenningi í landinu. Refsiaðgerirnar hafa verið lagðar á vegna kjarnorkuáforma íranskra stjórnvalda, en Ahmadínedjad hefur jafnan þvertekið fyrir að hann hafi haft í hyggju að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Á sunnudag hitti Rúhani þingmenn að máli og hvatti þá til að vinna með sér að því að vinna bug á þessum miklu erfiðleikum, sem landið á nú við að stríða. „Í dag glímir landið við flókið og erfitt ástand, og það stafar að hluta af stefnu innlendra stjórnvalda en að hluta af ósanngjörnum þrýstingi að utan,” sagði Rúhani. Óvíst er hvað Ahmadinedjad tekur sér fyrir hendur eftir forsetaskiptin, sem verða í næsta mánuði. Ólíklegt þykir að hann muni láta lítið fyrir sér fara, þótt hann verði ekki forseti lengur.Guðsteinn Bjarnason
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni taka yfir Krít Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Fleiri fréttir Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Sjá meira