Stórt draugaskip á reki um Norður Atlantshafið 27. febrúar 2013 06:53
Stórt mannlaust og vélarvana draugaskip rekur nú stjórnlaust um Norður Atlantshafið og getur skapað hættu fyrir skipaumferð. Hinsvegar vill enginn bera ábyrgð á þessu skipi. Skipið sem hér um ræðir heitir Lyubov Orlova en það er rúmlega 4.200 tonna skemmtiferðaskip sem er sérbyggt til siglinga í ís enda var það notað í skemmtiferðir um norðurslóðir. Það hafði verið kyrrsett í höfn í Kanada í tvö ár vegna skulda en var á leið í togi til Dóminíska lýðveldisins þar sem það hafði verið selt í brotajárn. Þegar dráttarbáturinn var staddur undan ströndum Nýfundnalands fyrir mánuði síðan slitnuðu dráttarvírarnir í miklu óveðri og Lyubov Orlova rak út í myrkrið. Í frétt um málið í blaðinu National Post í Kanada segir að gervihnöttur hafi fundið skipið en það er nú statt í um 2.400 kílómetra fjarlægð vestur af ströndum Írlands. Enginn vill bera ábyrgð á björgun þess. Yfirvöld í Kanada segja að skipið sé sér óviðkomandi enda á alþjóðlegri siglingaleið þegar dráttarvírarnir slitnuðu. Yfirvöld í Írlandi segja að þau taki afstöðu til málsins ef skipið rekur inn fyrir landhelgi þeirra. Landhelgisgæslan hér á landi hefur eftir föngum fylgst með reki skipsins að undanförnu, ef það kynni að reka hingað til lands. Miðað við staðsetningu þess nú, og ríkjandi hafstrauma, gæti það enn rekið norðaustur fyrir landið, ef það verður ekki tekið í tog á næstunni.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira