Erlent

Ók inn í mannþröng á Torgi hins himneska friðar

Mynd/AFP
Þrír hið minsta létust og marrgir eru slasaðir eftir að bifreið var ekið á fullri ferð inn í mannþröng á Torgi hins himneska friðar í höfuðborg Kína, Peking, í morgun.

Torgið var rýmt en eldur kom upp í bílnum þegar hann ók inn í þvöguna og endaði á steinbrú sem liggur að innganginum að Forboðnu borginni, einu helgasta véi Kínverja.

Fólkið sem lést var allt um borð í bílnum, að því er kínverskir miðlar segja, en óljóst er enn hvað varð þess valdandi að bíllinn ók inn í mannþröngina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×