Solberg meðal tveggja ráðherra sem ekki báðu um guðs hjálp Þorgils Jónsson skrifar 28. október 2013 10:40 Erna Solberg forsætisráðherra, sem hér er önnur frá hægri á myndinni, er ein af tveimur ráðherrum í norsku ríkisstjórninni sem ekki minntist á guð þegar hún sór embættiseið.
Erna Solberg, nýsettur forsætisráðherra Noregs, er einn af aðeins tveimur ráðherrum af átján í nýju ríkisstjórninni sem ákvað að minnast ekki á Guð þegar embættiseiðar voru svarnir. Þetta eru mikil umskipti frá ríkisstjórn Jens Stoltenbergs, en á átta árum voru aðeins sautján af 39 ráðherrum sem minntust á guð í eiðum sínum, og þar var Stoltenberg sjálfur ekki meðtalinn þar sem hann er ekki meðlimur í ríkiskirkjunni. Þetta kemur fram í kristilega dagblaðinu Vårt Land. Stjórnarskráin kveður á um að ráðherrar sverji stjórnarskrá og konungi hollustueið, en þeim er í sjálfvald sett hvort beðið sé um guðs hjálp. Eiðurinn er sem hér segir á frummálinu: „Jeg [nafn viðkomandi] lover og sverger, å vise Konstitusjonen og Kongen lydighet og troskap, så sant hjelpe meg Gud den Allemktige og Allvitende.“ Solberg og Vidar Helgesen aðstoðarforsætisráðherra sóru eiða sína árið 2001 þegar þau tóku sæti í ríkisstjórn Kjell Magne Bondevik og endurnýjuðu hann ekki sérstaklega að þessu sinni. Aðspurð segir Solberg að hún hafi ekki spáð mikið í hvort guðs hafi verið getið í eiðstafnum. Hún grunar að hún hafi einfaldlega undirritað skjalið eins og það kom til hennar. „Í okkar stjórn eru kannski fleiri sem eru meðlimir í ríkiskirkjunni. Þetta er kannski tengt flokkslitunum. En þetta gekk ansi fljótt fyrir sig eftir að við komum inn í Konungshöllina, þannig að ég veit ekki hversu margir íhuguðu [hvort getið væri um guð í eiðstafnum],“ sagði Solberg. Nýja ríkisstjórnin er samsteypustjórn tveggja hægri flokka, Hægriflokksins, sem Solberg til heyrir, og Framfaraflokksins. Stjórn Stoltenbergs var hins vegar sett saman úr þremur flokkum, frá vinstri inn að miðju.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Sjá meira