Varnarleikinn verður að bæta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. apríl 2013 09:30
Rafa Benitez, stjóri Chelsea, segir að hans menn verði að bæta varnarleik sinn fyrir undanúrslitaleikinn í enska bikarnum gegn Manchester City á sunnudaginn. Chelsea tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í gær þrátt fyrir 3-2 tap í síðari viðureign liðsins gegn Rubin Kazan í Rússlandi í gær. Chelsea bjó að 3-1 sigri í fyrri leiknum og fór því áfram samanlagt 5-4. Tvö marka Rubin Kazan komu með skalla eftir fyrirgjöf og Benitez hefur áhyggjur af vörninni. „Við verðum að stöðva fyrirgjafir og bregðast mun betur við þeim. Þetta voru hlutir sem við réðum ekki við gegn Rubin," sagði Benitez. Mark Fernando Torress eftir fjórar mínútur setti Chelsea í þægilega stöðu. Í síðari hálfleik voru þau augljósar brotalamir á leik liðsins þar sem liðið fékk á sig þrjú mörk. Var eflaust farið að fara um einhverja stuðningsmenn Chelsea eftir að Rubin komst í 3-2 og nægur tími til stefnu fyrir tvö mörk til viðbótar. „Ég er vonsvikinn því varnarleikurinn í seinni hálfleiknum var ekki nógu góður. Það eru ekki bara varnarmennirnir sem þurfa að bæta sig því þetta snýst um varnarleik liðsins í heild," sagði Benitez. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að hann ætlar að setjast yfir upptökur af leiknum og rannsaka málið. Chelsea mætir Man. City á Wembley í undanúrslitum enska bikarsins á sunnudag. Benitez gat hvílt Juan Mata og Eden Hazard í leiknum í gær. Hins vegar vakti rifrildi Frank Lampard og David Luiz undir lok fyrri hálfleiks athygli. „Það er alltaf gott þegar leikmenn rífast um atvik sem gerast inni á vellinum. Þá er hægt að fara yfir málið í leikhléinu," sagði Benitez. Mörkin úr leiknum í gær má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Chelsea tapaði í Rússlandi en komst áfram Chelsea er komið áfram í undanúrslit Evrópudeildar UEFA með 5-4 samanlögðum sigri á rússneska liðinu Rubin Kazan í fjórðungsúrslitum. 11. apríl 2013 10:17 Mest lesið Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Segist hafa skipt um hótel til að spara Fótbolti Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Körfubolti Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Enski boltinn „Leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum“ Handbolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport „Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ Handbolti Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik Handbolti „Get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sjá meira
Chelsea tapaði í Rússlandi en komst áfram Chelsea er komið áfram í undanúrslit Evrópudeildar UEFA með 5-4 samanlögðum sigri á rússneska liðinu Rubin Kazan í fjórðungsúrslitum. 11. apríl 2013 10:17