"Auðveldara" að láta drepa manninn sinn en skilja við hann Jóhannes Stefánsson skrifar 10. júlí 2013 18:00 Konan brosir og hlær þegar hún segir frá því að hún vilji láta ráða eiginmann sinn af dögum NEWS.COM.AU
Lögreglan í Michigan náði ótrúlegu myndbandi af því þar sem Julia Charlene segir við lögreglumann í dulargervi leigumorðingja að hún vilji láta drepa manninn sinn því það sé "auðveldara en að skilja við hann." Julia Charlene Merfeld er 20 ára íbúi í Michigan í Bandaríkjunum, en hún hefur játað fyrir rétti að hafa ætlað sér að láta myrða eiginmann sinn sem er 27 ára. Leynilögreglumaður vestanhafs tók á laun upp myndband eftir að hún hafði sett sig í samband við hann, en hún taldi hann vera leigumorðingja. Í myndbandinu sést þar sem hún útskýrir fyrir honum hvers vegna hún sé staðráðin í því að láta myrða eiginmanninn, en hún vil ekki að fjölskyldan sín dæmi sig fyrir skilnaðinn. Þá segist hún ekki vilja særa hann með skilnaðinum og telji því betra að ráða hann af lífi. Morðið sé því betri kostur en skilnaður, enda sé það „auðveldara en að skilja." Hún segir einnig í myndbandinu að hún geti ekki greitt leigumorðingjanum fyrr en eftir morðið enda muni laun hans koma úr líftryggingu eiginmannsins. Þá sést þar sem lögreglumaðurinn lýsir því fyrir henni hvernig morðið muni fara fram og hvort hún hafi skoðanir á hvernig það verði gert. Hún lætur hann þá fá skissu af húsinu og næsta nágrenni og mynd af eiginmanninum. Að endingu næst samkomulag um það að hann skjóti manninn í andlitið og tvisvar í hjartað. Hún biður morðingjann þó um að reyna að drepa hann utandyra, enda gæti húsið að öðrum kosti orðið skítugt. Þá er hún margspurð að því hvort hún sé viss hvort hún vilji að maðurinn sinn deyji. Á einum stað í myndbandinu sést þar sem hún spyr „er þetta kannski slæm hugmynd?" og hlær svo við. Lögreglumaðurinn segir þá „Ég er tilbúinn til að gera þetta, hverjar sem þínar ástæður eru. Ég vil bara peninginn." Skömmu síðar takast þau svo í hendur og konan fer svo úr bílnum Myndskeiðið var spilað fyrir dómara í gær. Dómur í málinu mun falla þann 30. júlí. Þetta kemur fram á vef News.com.au.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira