Stjórnvöld í Líbíu heimta útskýringar Freyr Bjarnason skrifar 7. október 2013 06:00 Abdul Moheman al-Raghie, sonur Abu Anas al-Libi, fyrir utan heimili þeirra þar sem faðir hans var handsamaður. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Líbíu hafa óskað eftir skýringum frá bandarískum stjórnvöldum á handtöku þeirra á Abu Anas al-Libi. Maðurinn var handsamaður úti á götu fyrir utan heimili sitt skammt fyrir utan höfuðborgina Trípólí og fluttur beint úr landi. Samkvæmt fjölskyldu mannsins hafði hann verið frjáls ferða sinna í heimalandi sínu síðan hann sneri aftur þangað fyrir þremur árum. Líbísk stjórnvöld segjast tilbúin til að lögsækja sjálf hvern þann sem búsettur er í landinu og skiptir þá engu máli um hvað hann er sakaður. Al-Libi var ákærður af dómstólum í New York fyrir aðild sína að sprengingum í tveimur bandarískum sendiráðum árið 1998, annars vegar í Tansaníu og hins vegar í Kenía, þar sem yfir 220 manns fórust. Hann hafði verið á lista bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn síðan listinn var gefinn út eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2011. Handtaka al-Libi var önnur tveggja af hálfu bandarískra sérsveita í Afríku á laugardaginn. Í Sómalíu reyndu liðsmenn bandaríska sjóhersins að handsama annan grunaðan hryðjuverkamann. Eftir skotbardaga komst maðurinn undan. Talið er að um hafi verið að ræða Mukhtar Abu Zubeyr, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna Al-Shabab í Sómalíu. Hann lýsti árásinni á verslunarmiðstöð í Naíróbí í Kenía á hendur sér en þar voru að minnsta kosti 67 drepnir. Al-Shabab hefur átt í samstarfi við al-Kaída og hafa bæði hryðjuverkasamtökin verið með starfsemi í Sómalíu. „Við vonum að þetta sýni fólki að Bandaríkin muni aldrei hætta að leita þeirra sem eru grunaðir um hryðjuverk,“ sagði John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um aðgerðirnar tvær á laugardaginn. „Meðlimir al-Kaída og annarra hryðjuverkasamtaka geta hlaupið en þeir geta ekki falið sig.“
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Fleiri fréttir Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Sjá meira