Yfir 600 látnir í aurskriðum og flóðum Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 22. júní 2013 07:00 Herinn hefur stjórnað öllum björgunaraðgerðum á hamfarasvæðinu síðustu daga. Aðstandendur hafa gagnrýnt seinagang en þyrlur sem hafa flutt fólk taka bara nokkra farþega í einu. Fréttablaðið/AP
Sex hundruð manns að minnsta kosti hafa látist vegna flóða og aurskriða í norðurhluta Indlands undanfarna daga. Yfirvöld í Indlandi hafa sagt að líklega séu mun fleiri látnir, jafnvel nokkur þúsund manns. 5000 manns var saknað þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Indverski herinn stjórnar umfangsmiklum björgunaraðgerðum á svæðinu en hafði í gærkvöldi ekki náð til allra þorpa sem urðu illa úti í hamförunum. Flugherinn hefur flogið yfir rúmlega hundrað þorp og bæi og hermenn hafa því komist í þangað í fallhlífum. Einnig hefur herinn komið mat og lyfjum í þorpin úr lofti. Innanríkisráðherra landsins, Sushilkumar Shinde, segir að 33 þúsund manns hafi verið bjargað en enn séu um 50 þúsund manns strand. Mikill fjöldi fólksins sem er fast eru hindúar í pílagrímsferðum. Aðstandendur þeirra sem er saknað hafa margir hverjir gagnrýnt seinagang stjórnvalda í björgunaraðgerðunum, en flestra hefur verið saknað frá því síðastliðinn sunnudag. Hundruð mótmæltu seinaganginum í gær og gagnrýndu að litlar þyrlur flyttu fólk af verstu svæðunum. Landbúnaðarráðherra landsins hefur farið um svæðið og segir hamfarirnar þær verstu á þessari öld. „Það mun taka okkur að minnsta kosti fimm ár að jafna okkur á þessum mikla skaða sem orðið hefur á öllum innviðum á Kedarnath-svæðinu, sem varð verst úti,“ sagði Harak Singh Rawat landbúnaðarráðherra. Hann sagðist vera í áfalli eftir að hafa séð hversu umfangsmikil eyðileggingin er.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira