EM 2020 fer fram í þrettán borgum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2013 15:38 Spánverjar hafa unnið síðustu tvö Evrópumót sem fóru fram 2008 og 2012. Mynd/AFP
Evrópska knattspyrnusambandið gaf það út í dag að EM 2020 muni fara fram í þrettán borgum víðsvegar í Evrópu en ekki einu eða tveimur löndum eins og hingað til. Framkvæmdastjórn UEFA tók þessa ákvörðun á fundi sínum en Michael Platini, forseti UEFA, hafði áður rætt þessa hugmynd á opinberum vettvangi. Platini kallar þessa keppni "EURO for Europe" eða Evrópumót fyrir Evrópu. UEFA mun velja þessar þrettán borgir í september 2014 en meðal skilyrða hjá hverri fyrir sig er að stuðningsmenn þeirra liða sem spila þurfi ekki að umgangast hverja aðra á viðkomandi flugvelli. Leikvellir fyrir undanúrslit og úrslitaleik þurfa að taka 70 þúsund áhorfendur, leikvellir í átta liða úrslitum þurfa að taka 60 þúsund áhorfendur en 50 þúsund manna vellir nægja fyrir leiki í sextán liða úrslitum og í riðlakeppni. UEFA mun setja saman þrettán pakka fyrir viðkomandi borgir, tólf þeirra munu innihalda þrjá leiki í riðlakeppni og einn leik í 16 eða 8 liða úrslitum en sá síðasti mun innihalda undanúrslitaleiki og úrslitaleik sem fara fram á sama velli. Borgirnar þrettán verða að koma frá þrettán löndum. Næsta Evrópumót fer fram í Frakklandi árið 2016 en það verður jafnframt fyrsta Evrópukeppnin með 24 þáttökuliðum því aðeins sextán þjóðir voru með á EM 2012 í Póllandi og Úkraínu.
Fótbolti Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira