Innlent

Viðræður að komast í gang

Jóhann Margrét Einarsdóttir skrifar
Kjarasamningar renna út um mánaðamótin. Eiginlegar kjaraviðræður hefjast eftir helgi. Reyna á að gera skammtímasamning til eins árs.
Kjarasamningar renna út um mánaðamótin. Eiginlegar kjaraviðræður hefjast eftir helgi. Reyna á að gera skammtímasamning til eins árs. Mynd/Vilhelm
„Okkur er ekkert að vanbúnaði. Ég á því von á að samningaviðræður fari á fulla ferð strax eftir helgi,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.



Gylfi ARnbjörnsson
Samningaviðræður hafa síðustu daga strandað á því að Alþýðusambandið vildi skýrari svör varðandi nokkra þætti fjárlagafrumvarpsins. Forystumenn sambandsins hafa í vikunni átt fundi með ráðherrum, nú síðast fjármálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Ég tel mig hafa fullvissu fyrir því að stjórnvöld ætli að koma til móts við þá lykilþætti sem við höfum lagt áherslu á í frumvarpinu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins.

Hann telur að það verði bætt í varðandi heilbrigðiskerfið og það verði komið til móts við atvinnuleitendur, bæði þá sem eru að leita að vinnu og þá sem hafa klárað bótarétt sinn. Þá ætli stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína til menntamála og sjóða sem félagar í verkalýðshreyfingunni hafa getað sótt í.

Gylfi segir að aðildarsambönd ASÍ ætli að ganga sameinuð til kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins. „Við ætlum að gera sameiginlegan aðfarasamning til skamms tíma og hefjast svo handa við gerð samnings til lengri tíma.“

Gylfi segir að það verði ekki hægt að landa samningi með tveggja prósenta launahækkun. 

„Verðbólgan er 3,3 prósent svo það þarf meira en tvö prósent til að kaupmáttur aukist. Við og Samtök atvinnulífsins erum sammála um að það eigi að auka kaupmátt,“ segir hann.

Þorsteinn Víglundsson segir að launaliður hafi ekkert verið ræddur. „Það er hins vegar einhugur um að gera samning til tólf mánaða,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×